Thomas afgreiddi Arsenal Siggeir Ævarsson skrifar 16. desember 2023 14:02 Martha Thomas fagnar marki sínu í dag Vísir/Getty Arsenl mistókst hrapalega að fylgja eftir góðum sigri á meisturum Chelsea í ensku úrvalsdeild kvenna í dag þegar liðið tapaði 1-0 gegn Tottenham.
Yfirburðir Arsenal voru miklir í dag en í fyrri hálfleik náði Tottenham aðeins einu skoti á markið og einni snertingu í vítateig Arsenal. Vörn Tottenham var frábær í dag og Barbora Votíková var eins og klettur í markinu og varði hvert einasta skot sem rataði á rammann. Votíková fékk svo gult spjald á 70. mínútu fyrir tafir, enda lá Tottenham ekkert á. Eina mark leiksins kom á 58. mínútu eftir glæsilegt samspil frá afasta manni og upp allan völlinn. Þar kom Martha Thomas aðvífandi ein og óvölduð og skoraði sitt sjöunda mark á tímabilinu. Þessi skoski landsliðsframherji, sem skoraði aðeins eitt mark í 20 leikjum með Manchester United á síðustu leiktíð, er heldur betur búin að finna skotskóna. Markið í dag var 7. mark hennar í deildinni og er hún markahæst ásamt Elisabeth Terland, leikmanni Brighton. Ange Postecoglou, stjóri karlaliðs Tottenham, lét sig ekki vanta á völlinn í dagTwitter@SpursOfficial Þrátt fyrir orrahríð Arsenal að marki Tottenham í seinni hálfleik tókst þeim ekki að finna netmöskvana, lokatölur í Lundúnum 1-0. Úrslitin þýða að Arsenal mistekst að taka toppsætið af Chelsea, sem á leik til góða gegn Bristol á morgun. Bristol í næst neðsta sæti deildarinnar með fimm stig svo að líkurnar verða að teljast með Chelsea í hag fyrir þann leik.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Fleiri fréttir Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Sjá meira