„Er ekki dýrt að eiga svona barn?“ Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 17. desember 2023 20:00 Guðný og Tryggvi fá reglulega spurningar sem snúa að Sigurði Hjálmari. Þau segja hann mikinn orkubolta, það skiptist á með skini og skúrum en þau elski hann nákvæmlega eins og hann er. „Ég fæ reglulega spurningar eins og „Er þetta ekki erfitt?“ eða „Hvernig farið þið að þessu?“ segir Guðný Erla Guðnadóttir, móðir hins sjö ára gamla Sigurðar Hjálmars. Sigurður Hjálmar er greindur með ódæmigerða einhverfu, þroskahömlun, ADHD, hegðunarerfiðleika, frávik í gróf og fínhreyfifærni og frávik í skynjun.
Fyrir ári greindist Sigurður Hjálmar til viðbótar með litningagalla og er hann með stökkbreytingu á MYT1L geni á litning 2. Um er að ræða litningagalla sem er svo sjaldgæfur að Sigurður Hjálmar er eina tilfellið sem vitað er um á Íslandi. Sigurður Hjálmar fagnaði sjö ára afmælisdegi sínum fyrr í mánuðinum. Hann er búsettur í Vestmannaeyjum ásamt foreldrum sínum, þeim Tryggva Steini Ágústssyni og Guðnýju Erlu Guðnadóttur og litlu systur sinni, henni Sædísi sem er tveimur árum yngri. Sigurður Hjálmar á auðvelt með heilla fólk upp úr skónum. Hann er hjartahlýr og sjarmerandi, vinnusamur og stríðinn strákur. En að ala upp barn sem glímir við margvíslegar raskanir getur svo sannarlega verið flókið og erfitt og það vita þau Guðný Erla og Tryggvi svo sannarlega. Feðgarnir Tryggvi Steinn og Sigurður Hjálmar á góðri stundu.Aðsend Á dögunum lýsti Guðný stuttlega lífinu með Sigurði Hjálmari og þeim áskorunum sem hann og fjölskyldan glímir við á hverjum degi í færslu á Facebook. „Við fáum reglulega spurningar frá fólki eins og „Af hverju lætur hann svona?“ eða „Af hverju er hann svona óþekkur?“ eða „Er ekki dýrt að eiga svona barn?" Og þá er ég ekki bara að tala um spurningar frá börnum, heldur líka fullorðnu fólki. Það var svona kveikjan að því að ég skrifaði færsluna,“ segir Guðný. Hún segir að vissulega geti það verið erfitt og krefjandi að ala upp barn sem glími við margvíslegar raskanir. „En við sýnum það ekki. Maður fer ekkert öðruvísi að honum en og öðrum börnum, því hann er mjög gáfaður og myndi alveg taka eftir því. Þegar hann var yngri þá horfði maður á hann allan daginn.“ Mikilvægt að sýna nærgætni Líkt og önnur börn sem glíma við umræddar raskanir á Sigurður Hjálmar oft erfitt með að hafa stjórn á skapi sínu og tilfinningum. „Hann hefur tekið nokkur fljótfærnisköst og skemmt ýmislegt, þar með talið sjónvarp, nýja útidyrahurð sem var verið að fara setja í, sófa og margt fleira,“ segir Guðný. „Svo kemur yfirleitt aldrei fyrir að hann sofi heilu næturnar. Við Tryggvi náum mjög sjaldan góðum nætursvefni en við reynum að passa að kvarta ekki yfir því eða tala um það, og þá sérstaklega ekki fyrir framan krakkana þar sem þá verður bara pirringur í honum allan daginn.“ Sigurður Hjálmar eigi það til að missa stjórn á sér og skipti þá engu máli hvort það sé heima fyrir eða annars staðar. Þá sé auðvelt fyrir þá sem ekki þekkja til að horfa á hann og draga þá ályktun að hér sé einfaldlega á ferð óþekkur krakki sem þurfi aga. Tryggvi og Guðný hafa til að mynda verið spurð hvort þau „þurfi ekki bara að laga uppeldið.“ Sigurður Hjálmar ásamt Svövu Kristínu íþróttafréttakonu á Stöð 2.Aðsend Tryggvi telur mikilvægt að fólk sýni aðgát í þessum aðstæðum og gæti að orðavali, í stað þess að hrapa að ályktunum. „Það er alltaf mjög erfitt að fá þessar spurningar frá fólki. En það hjálpar ef spurningin er sett fram af nærgætni og varfærni.“ Tryggvi bendir einnig á að börn eins og Sigurður Hjálmar beri það ekki með sér útlitslega að þau glími við ákveðna fötlun. „Fólk er oft svo rosalega fljótt að dæma, til dæmis ef það sér okkur með hann í Smáralind og hann tryllist og tekur kast af því að hann fær ekki að fara í eitthvað leiktæki. Hann kann ekki að bregðast öðruvísi við.“ Hæðir og lægðir Guðný og Tryggvi eru einnig reglulega spurð að því hvort þau ætli ekki að eignast fleiri börn. Svarið við þeirri spurningu er hins vegar ekki auðvelt. „Draumurinn minn var alltaf að eignast þrjú börn. En hvort það verður að veruleika veit ég ekki.“ Hún rifjar upp þegar hjónin fengu fréttirnar af litningagallanum frá erfðalækni Sigurðar. Hann hafi ráðlagt þeim henni að fara í glasameðferð því þá væri hægt að fjarlægja litningagallann. „En ég fékk líka að heyra það að ef ég yrði ólétt náttúrulega þá yrði hægt að skoða með litningagallann og hvort hann væri til staðar og ef svo væri gæti ég farið í fóstureyðingu. Að heyra þetta var virkilega erfitt og tók mikið á mig,“ segir Guðný. Guðný og Tryggvi taka fram að þó svo að lífið með Sigurði Hjálmari sé krefjandi og fullt af áskorunum þá sé það á sama tíma gefandi og lærdómsríkt. Sigurður Hjálmar er mikill „vinnukall" að sögn foreldra hans.Aðsend „Við elskum hann eins og hann er. Hann er dásamlegur karakter,“ segir Guðný og Tryggvi tekur undir: „Hann er algjör vinnukall, og elskar að smíða og brasa með mér. Við getum dúllað okkur saman endalaust. Svo er hann algjör prakkari líka. Hann gefur okkur rosalega mikið á hverjum einasta degi en á sama tíma getur hann tæmt hjá okkur orkuna á núll einni. Það eru miklar hæðir og lægðir.“
Börn og uppeldi Geðheilbrigði Heilbrigðismál Vestmannaeyjar Einhverfa Mest lesið Fötlunin ekki stærsta áfallið heldur veikindin sem fylgdu Lífið Kenndi sjálfum sér um í tuttugu ár Lífið Mótmæltu keppninni í fyrra en ætla sér alla leið í ár Lífið Þetta eru keppendur Söngvakeppninnar 2025 Lífið „Lífið væri svo miklu leiðinlegra ef ég ætti ekki bróður með Downs“ Lífið Fréttatía vikunnar: Bólfélagar, fjársvik og flóð Lífið Ragna Sigurðardóttir á von á barni Lífið Grundvallarmisskilnings gæti um þaksvalir á Íslandi Lífið Ryan Reynolds og Taylor Swift hafi beitt hann þrýstingi Lífið Troðfullt hús og standandi lófaklapp Menning Fleiri fréttir Grundvallarmisskilnings gæti um þaksvalir á Íslandi „Lífið væri svo miklu leiðinlegra ef ég ætti ekki bróður með Downs“ Kenndi sjálfum sér um í tuttugu ár Fréttatía vikunnar: Bólfélagar, fjársvik og flóð Fötlunin ekki stærsta áfallið heldur veikindin sem fylgdu Mótmæltu keppninni í fyrra en ætla sér alla leið í ár Ragna Sigurðardóttir á von á barni Þetta eru keppendur Söngvakeppninnar 2025 Erling og Sigríður selja húsið eftir átján ár Ryan Reynolds og Taylor Swift hafi beitt hann þrýstingi Gucci og glæsileiki á Ítalíu hjá Línu og Gumma Taldi læknana vera að grínast þegar hann vaknaði úr dái Sjá loksins fyrir endann á erfiðustu framkvæmdum á ferlinum Joan Plowright er látin Dóttir Ernu Mistar og Þorleifs Arnar fædd Minntust þess að 30 ár eru liðin frá því að flóðið féll Adam Sandler á sýningu Maríu Birtu í Las Vegas Nicola Sturgeon orðin einhleyp Mætti með fertugan Paddington á forsýninguna David Lynch er látinn Flugfélag bregst við vegna kómískrar frásagnar Katrínar Skælbrosandi Sofia snæddi með Lewis Erótískt hommablað vill mynda akureyrska fola Bobbysocks og Wig Wam vilja aftur í Eurovision Sagði engum frá nema fjölskyldunni Fallegt heimili Völu á Álftanesinu Starfsdagar nauðsynlegir, meira ofbeldi og ljótara orðbragð „Þetta er svo ósanngjarnt og enn mjög óraunverulegt fyrir okkur fjölskylduna“ Nóg pláss fyrir tvo í sturtunni Kynferðisleg stífla hjá húsfélaginu Sjá meira