Besta jólagjöfin Tinna Tómasdóttir og Lovísa Jóhannsdóttir skrifa 8. desember 2023 13:31 Nú á dögum okkar hraða samfélags og komandi jóla er gott að huga að því hvað skiptir í raun máli. Börnin okkar vaxa úr grasi og þroskast hratt og þar á meðal málþroskinn. Hlutverk okkar foreldra er að ýta undir málþroska barnanna okkar með því að vera dugleg að tala við börnin og setja orð á allt sem við gerum. Börn læra ekki orð af sjálfu sér, við þurfum að kenna þeim þau. Þegar börn svo hafa lært orðin er það okkar hlutverk að víkka þann orðaforða og dýpka skilning á mismunandi orðum. Flest börn hafa löngun til að tjá sig, vilja samveru með foreldrum/forráðamönnum og una við bóklestur. Því er mikilvægt að skapa þessi tækifæri. Barn þarf að hafa tækifæri til að tjá sig og fá hvatningu svo það finni að það er þess virði að tjá sig og á það sé hlustað. Nýtum umhverfið í að auka málþroska barnanna, í búðinni, í bílnum, heima, í göngutúrnum, í sundi, á ferðalagi og hvar sem við erum stödd. Almenn málörvun barna fer nefnilega ekki einungis fram í leikskólanum, skólanum eða skipulögðum málörvunarstundum. Málörvun á sér stað alls staðar! Mikilvægt er að flétta þessa málörvun inn í daglegt amstur og þá er gott að hafa eftirfarandi ráð í huga: Tölum (og tölum og tölum ..... ) við barnið – málörvun á sér stað alls staðar og öflug málörvun er alltaf af hinu góða. Verum dugleg að spjalla við barnið í öllu sem við gerum, hvort sem það er í leik eða daglegum athöfnum. Rannsóknir hafa sýnt að það skiptir mjög miklu máli hversu mikið við tölum við börnin okkar og hversu innihaldsrík þau samskipti eru svo stöðugt bætist í orðaforða og hugtakaskilning þeirra. Munum samt að gefa barninu svigrúm til að meðtaka það sem við erum að segja og gefum því tækifæri til að tjá sig. Notum sömu orð í mismunandi samhengi – til að víkka orðaforða barna er mikilvægt að bæta við það sem þau segja t.d. Barnið segir „hundur“ – að bæta við og segja „já þarna er hundur, hann er stór og hann hleypur hratt“. Ef barnið segir „ég er svöng/svangur/svangt“ að segja „já ég er líka alveg glorhungruð/glorhungraður/glorhungrað eða sársvöng/sársvangur/sárvangt“. Með því að nota orð í mismunandi samhengi erum við að auðga orðaforða barnsins og það lærir að orð geta haft mismunandi merkingu. Nefnum athafnir og gefum fyrirmæli – setjum orð á allt sem við gerum bæði innan heimilis og utan þess, t.d. „Nú ætla ég að elda matinn, þá þarf ég að nota pönnu, steikarspaða, olíu og hakk – viltu rétt mér hakkið sem er inni í ísskáp í mið hillunni við hliðina á mjólkinni”. “Nú ætla ég að taka úr þvottavélinni, sjáðu, þá þarf ég að nota þvottabalann, finna þvottaklemmur og herðatré og hengja upp – viltu rétta mér hvíta balann sem er bak við hurðina”. “Nú erum við að fara í sund, þá þurfum við að fara inn um stóru hurðina og setja skóna okkar í hilluna, síðan þurfum við að fara inn í klefa og fara í sturtu og klæða okkur í sundfötin“ osfrv. Með því að setja orð á allt sem við gerum og leggja inn einföld fyrirmæli fyrir barnið þá erum við að tengja orð við athafnir og barnið nær enn frekar að tileinka sér þau orð sem við erum að leggja inn, það lærir að hlusta betur og vinna betur úr þeim upplýsingum sem við erum að gefa þeim. Stundum er talað um að foreldrar/forráðamenn eigi að vera nokkurs konar íþróttafréttamenn – þ.e. að lýsa öllu sem foreldri/forráðamaður gerir, öllu sem gerist í kringum barnið og öllu sem fyrir augun ber. Sniðugt er að vera með „Orð dagsins“ en þá eru orð skrifuð á blað, þeim safnað í krukku og á hverjum degi er dreginn miði t.d. við kvöldmatarborðið og jafnvel hengt á ísskápinn. Þá er orðið rætt, t.d. Handklæði – hvað er handklæði, hvernig lítur handklæði út, hvað notum við handklæði í, hvar finnum við handklæði. Hægt er að fallbeygja, finna eintölu/fleirtölu, bæta við greini, finna kyn orðsins ofl. þegar börnin eru orðin eldri. Einnig er hægt að búa til setningu sem inniheldur orðið. Oft geta skapast miklar og skemmtilegar umræður um eitt einfalt orð og um leið skapar það samveru og tækifæri til að tjá sig. Fyrir yngri börn er einnig hægt að vera með myndir og draga mynd – t.d. úr einföldum Lotto spilum eða Alias. Hér er hægt að aðlaga Orð dagsins að aldri barna á heimilinu og vera með flóknari orð eða orðasambönd þegar börnin eru orðin eldri. Í aðdraganda jóla er oft mikið um að vera og að mörgu að huga. Reynum samt að skapa stundir þar sem fjölskyldan gerir eitthvað saman og kostar ekki mikið, t.d. Eigum kvöldstund þar sem borðspil eru spiluð. Horfum á jólamynd og ræðum söguþráðinn - hvað gerðist í myndinni, af hverju gerðist það og hvað hefði gerst ef… Hlustum á jólalög og ræðum orð sem eru erfið eða öðruvísi í textanum, pælum í orðunum. Lesum bók við kertaljós eða með heitt kakó - skoðum myndirnar saman, ræðum orð sem eru erfið, rifjum upp hvað við lásum síðast og drögum ályktanir út frá myndum eða heitum á kafla bókarinnar. Bökum saman eða eldum matinn saman - það er heilmikil málörvun í að lesa uppskriftir og skipta með sér verkum. Þetta eru meðal annars einfaldar leiðir til að eiga samverustundir. En hver svona stund er svo dýrmæt og getur haft mikil áhrif á málþroska barna, þ.m.t. orðaforða, skilning og tjáningu. Einnig styrkir það tengsl því öll börn hafa þörf fyrir tengingu sem er stór partur af þroska þeirra. Munið að þið foreldrar/forráðamenn eruð besta fyrirmynd barnsins þegar kemur að málþroska og þið gegnið veigamestu hlutverki í lífi barnsins ykkar. Þið gegnið lykilhlutverki þegar kemur að örvun málþroskans. Börn auka orðaforða sinn, tjáningu og skilning í gegnum samskipti við aðra og því er mjög mikilvægt að þau fái mörg tækifæri til þess með samskiptum við foreldra/forráðamenn sína og fjölskyldu. Gefum börnunum okkar bestu jólagjöf sem við getum gefið þeim – gefum þeim tíma okkar og nærveru. Nýtum jólafríið og þær stundir sem við eigum í fríinu til að tala saman, syngja saman, spila saman, leika saman, lesa saman og umfram allt bara vera saman. Hér fyrir neðan er hugmynd að jólabingó sem skemmtilegt er að nota í jólafríinu og skapa um leið skemmtilegar stundir og dýrmætar minningar. Gleðileg jól og njótið samverunnar Höfundar eru talmeinafræðingar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jól Börn og uppeldi Mest lesið Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Halldór 31.10.26 Halldór Skoðun Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun