Andri og Viggó atkvæðamestir í öruggum sigri Ágúst Orri Arnarson skrifar 3. desember 2023 17:19 Viggó Kristjánsson heldur áfram að sýna snilli sína í þýsku úrvalsdeildinni Getty/Hendrik Schmidt Rúnar Sigtryggsson stýrði Íslendingaliðinu Leipzig til 20-19 sigurs á Erlangen í spennandi og mjög kaflaskiptum leik. Viggó Kristjánson leiddi markaskorun Leipzig með 8 mörk, Andri Már Rúnarsson fylgdi honum eftir með 5 mörk.
Erlangen byrjaði leikinn vel og komst snemma tveimur mörkum yfir, en þá fékk Cristopher Bissel tveggja mínútna brottvísun og gaf Leipzig færi á að jafna leikinn. Leipzig nýtti tækifærið vel, skoraði úr næstu þremur sóknum og var skyndilega komið marki yfir. Erlangen elti þessa eins marks forystu allan fyrri hálfleikinn og tókst loks á lokamínútunni að komast aftur yfir en Viggó Kristjánsson jafnaði leikinn fyrir Leipzig á síðustu sekúndu fyrri hálfleiks. Þeir félagar, Andri og Viggó, spiluðu svo vel saman í upphafi seinni hálfleiks. Skoruðu og lögðu upp á hvorn annan til skiptis á meðan Leipzig brunaði fram úr gestunum. Þegar tæpar níu mínútur voru eftir leiddi Leipzig með fimm mörkum en þá tóku gestirnir ótrúlegt áhlaup, skoruðu fjögur í röð og hleyptu engu inn fyrir hinum megin. Skyndilega munaði aðeins einu stigi og enn var nægur tími til stefnu. Bæði lið skelltu þó í lás síðustu tvær mínúturnar og mörkin urðu ekki fleiri. Eins marks sigur Leipzig í hús og þeir koma sér upp í 7. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar.
Þýski handboltinn Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Sjá meira