Skoðun

Á­byrgð og auð­lindir

Jóna Bjarnadóttir skrifar

Landsvirkjun var í vikunni útnefnd umhverfisfyrirtæki ársins 2023 af Samtökum atvinnulífsins. Það er ánægjulegt að fá viðurkenningu á því umfangsmikla starfi sem fer fram hjá okkur í umhverfis- og loftslagsmálum. Við erum með skýra stefnu og henni fylgja markmið og tímasettar aðgerðir.

Landsvirkjun, orkufyrirtæki í eigu þjóðarinnar, framleiðir rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum á fimm starfssvæðum víðs vegar um landið. Við tökum þeirri ábyrgð alvarlega að vinna með náttúruauðlindir. Við þekkjum umhverfisáhrif starfseminnar vel og vinnum stöðugt að því að draga úr þeim eins og kostur er á öllum stigum; við hönnun nýrra virkjana, í framkvæmdum og í rekstri.

Við hjá Landsvirkjun gerum einnig ríkar kröfur til þeirra sem við vinnum með um að draga úr losun og koma í veg fyrir umhverfisatvik. Við beitum til dæmis innra kolefnisverði við ákvarðanatöku og vorum fyrsta íslenska fyrirtækið til að taka það verkfæri í notkun.

Orkumál eru loftslagsmál

Loftslagsmál eru samofin allri starfsemi fyrirtækisins. Kolefnisspor orkuvinnslu fyrirtækisins er með því lægsta sem þekkist á heimsvísu. Frá árinu 2005 höfum við tvöfaldað raforkuvinnsluna, en á sama tíma hefur losun á orkueiningu lækkað um 67%.Sá árangur hefur náðst með stöðugri áherslu á loftslags- og umhverfismál á öllum sviðum starfseminnar.

Landsvirkjun er eitt 283 fyrirtækja í heiminum og eina íslenska fyrirtækið sem hefur fengið hæstu einkunn alþjóðlegu samtakanna CDP og telst þar með til leiðandi fyrirtækja í loftslagsmálum á heimsvísu. Landsvirkjun situr líka á lista Financial Times yfir þau evrópsku fyrirtæki sem hafa minnkað losun á framleiðslueiningu mest á árunum 2016-2021.

Að vera leiðandi í loftslagsmálum snýst ekki bara um að minnka eigin losun.

Við leggjum áherslu á að bregðast við loftslagsbreytingum þvert á starfsemina. Sem dæmi má nefna aðlögun að auknu rennsli og græna fjármögnun.

Öll okkar orkuvinnsla telst til loftslagsaðgerða enda leika orkuskipti lykilhlutverk í því að minnka samfélagslosun. Við styðjum jafnframt við orkuskiptin með margvíslegum hætti, til dæmis með þátttöku í samstarfsverkefnum um orkutengda nýsköpun og þróun rafeldsneytisframleiðslu.

Við þurfum öll að vinna saman

Við leggjum okkur fram við að vera heiðarleg og gegnsæ um markmið, aðgerðir og árangur. Bæði til að upplýsa um framvindu en einnig til að deila með öðrum þeim aðferðum sem við beitum því í umhverfismálum þurfum við öll að vinna saman.Ávinningur af öflugu umhverfisstarfi er okkar allra og komandi kynslóða.

Vönduð vinnubrögð, framsýni og hugrekki til að fara nýjar leiðir, oft umfram lagalegar kröfur, skilar sér í því að við erum tilbúin að takast á við þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í dag. Þar gildir einu hvort við tölum um orkuskiptin eða nýja löggjöf sem verið er að innleiða varðandi ófjárhagslega upplýsingagjöf og umhverfislega sjálfbæra atvinnustarfsemi.

Við hjá Landsvirkjun erum þakklát fyrir viðurkenningu Samtaka atvinnulífsins á þessum góða árangri okkar í loftslags- og umhverfismálum. Þetta er hvatning fyrir okkur að halda áfram á þessari mikilvægu vegferð. Orkufyrirtæki þjóðarinnar á að ganga á undan með góðu fordæmi og verður áfram í forystu í umhverfis- og loftslagsmálum.

Höfundur er framkvæmdastjóri Samfélags og umhverfis hjá Landsvirkjun.




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×