Skoðun

Svartur föstu­dagur allt árið um kring

Andrés Ingi Jónsson skrifar

Nóvember virðist orðinn að sérstökum útsölu- og tilboðsmánuði, góð kaup birtast í hverju horni, dag eftir dag. Það er auðvelt að fyllast kaupæði við þessar aðstæður og ætli við upplifum ekki mörg að vera sífellt að missa af tækifæri, að við nánast töpum á því að eyða ekki pening þessa dagana?

Þegar hillur verslana fyllast af vörum með miklum afslætti er eðlilega freistandi að stökkva til. En er ekki eitthvað skakkt við efnahagskerfi þar sem það getur verið hagstæðara að kaupa nýjar buxur, ryksugu eða þvottavél, en að láta gera við hlutina sem við eigum nú þegar. Það er nefnilega ekkert náttúrulögmál að fólk vilji helst hlaupa til og kaupa nýja hluti – samfélaginu okkar hefur bara verið stillt þannig upp að oft er auðveldari og ódýrari kosturinn sá sem er verstur fyrir umhverfið.

Markmiðið hlýtur að vera að gera það auðveldara fyrir fólk að velja umhverfisvæna og skynsama kostinn í hverri stöðu, frekar en að viðhalda ósjálfbæru hagkerfi og skamma fólk fyrir að gera ekki hið ómögulega. Hér er kjörið tækifæri fyrir hið opinbera að stíga fram og hjálpa almenningi: Að einfalda fólki að láta gera við hluti.

Með því að styðja fólk til að lengja líftíma hluta með viðgerðum vinna stjórnvöld í átt að eigin skuldbindingum í loftslagsmálum, en hjálpa jafnframt almenningi að taka virkan þátt í grænni umbyltingu samfélagsins. Viljinn er sannarlega til staðar hjá almenningi þó að ríkisstjórnin hafi til þessa nær eingöngu haft hugarflug í að virkja þann vilja með því að hjálpa hluta fólks að kaupa nýja, dýra rafmagnsbíla.

Þingflokkur Pírata lagði nýlega leið til að ná þessu í frumvarpi um hringrásarstyrki. Þar leggjum við til að fólk geti fengið endurgreiddan kostnað við viðgerðir á hlutum eins og húsgögnum, raf- og rafeindatækjum, reiðhjólum, fatnaði og skóm. Aðferðafræðin er vel þekkt því þetta hefur verið prófað í nokkrum löndum með góðum árangri. Þannig má nefna að í Frakklandi getur fólk sótt um endurgreiðslu vegna fataviðgerða og undanfarið ár hefur verið hægt að sækja um styrk til endurgreiðslu vegna viðgerða á raftækjum í Austurríki.

Hringrásarstyrkir væru einföld leið til að ná mörgum jákvæðum markmiðum; þeir væru góðir fyrir umhverfið og loftslagið, myndu létta pyngjuna hjá neytendum og skapa atvinnu hjá fjölda fólks í viðgerðaþjónustu. Styrkurinn myndi nema helmingi af kostnaði við viðgerð, að hámarki 25 þúsund krónur í hvert skipti og mest 100 þúsund krónur á ári.

Hversu miklu meira myndi fólk nýta sér viðgerðarþjónustu ef það gæti fengið góðan afslátt – ekki bara á svörtum föstudögum heldur allt árið um hring?

Höfundur er þingmaður Pírata.




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×