Eru lífeyrissjóðir fyrir alla? Sigurður H. Einarsson skrifar 13. nóvember 2023 07:31 19. maí árið 1969 sömdu Alþýðusambandið og Vinnuveitendasamband Íslands um það í kjarasamningum að stofna lífeyrissjóð fyrir verkafólk.Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Einu sinni voru til 97 lífeyrissjóðir og þótti sjálfsagt en í dag eru viðhorfin önnur og þætti flestum það galið að hafa slíkan fjölda lífeyrissjóða. Nær væri að hafa þá 4 til 5 og best væri að hafa einn lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn en það er önnur saga. En hver er ávinningurinn á því að borga í lífeyrissjóð? Lífeyrissjóðirnir gefa það út að það sé ávinningur fyrir alla að borga í lífeyrissjóð, en er það svo?????? Að lenda fyrir utan kerfið, eða drengurinn að vestan. Ungur drengur elst upp fyrir vestan og byrjar að vinna strax að vinna þegar hann hefur getu til..Og á unglingsárum er hann kominn í beitningu og að stokka upp línu. Og hefur verið á vinnmarkaðinum óslitið frá árinu 1995, við ýmis störf bæði til sjós og lands, Á árunum 2005 til 2013 starfar hann hjá Norðurál á Grundartanga. En ekki vakti það áhuga hjá honum að gera það að ævistarfi að starfa fyrir þetta fyrirtæki sem rekur mjög mannfjandsamlega starfsmannastefnu enda fyrirtæki í eigu erlendra fjárglæframanna. Það fékk piltinn til að hugsa síg til hreyfings og niðurstaðan var sú að leita sér meiri menntunar til að gera lífið aðeins bærilegra heldur en að vinna í verksmiðju. Og fyrir valinu varð lögfræði og árið 2019 lauk þessi greindi og flotti strákur 5 ára námi í lögfræði og brautskáðist með embættispróf í lögum frá Háskólanum í Reykjavík. Á námsárunum starfaði hann sem ökuleiðsögumaður fyrir ferðamenn. Allan tíman borgaði hann í lífeyrissjóð eins og aðrir á vinnumarkaðinum gera.Sá peningur er tekinn af fólki með lagaboði og er lífeyrir ætlaður til að vera hluti af samtryggingunni , hvort heldur þegar fólk hættir á vinnumarkaðinum vegna aldurs eða vegna veikinda. Það velur það engin að veikjast. Sléttum mánuði eftir útskrift tók líf hins unga lögfræðing algjöra U – beygju og má teljst hepinn að vera á lífi í dag. Þann dag dettur hinn ungi lögfræðingur út af vinnumarkaðinu og hefur ekki átt afturkvæmt síðan í neina vinnu. Greindist hann með æxli í heila sem hefur verið fjarlægt að mestu með tveimur stórum skurðaðgerðum og var þetta heilsutjón til þess að hann hefur ekki komist á vinnumarkaðinn síðan. Samhliða þessu fór hann á endurhæfinglífeyrir og var ráðlagt að sækja um örorkugreiðslur úr þeim lífeyrissjóðum sem hann átti réttindi í . Og gerði hann það og fékk greiðslu í 3 mánuði frá lífeyrissjóðnum en svo stoppuðu þessar greiðslur. Er lífeyrisgreiðslur ekki fyrir alla sem greiða í þá??? Lífeyrissjóðurinn hans heldur því fram að réttindi hans í sjóðnum væri fallin niður vegna þess að hann hafi ekki orðið fyrir raunverulegri tekjuskerðinu vegna lágra tekna síðustu 4 árin. Ennfremur tjáði sjóðurinn að staðan eins og hún væri myndi ekkert breytast neitt, þetta væri svona skv, þeirra samþykktum og þær gilda um þetta . Niðurstaðan er því sú að þrátt fyrir að hafa verið á vinnumarkaðinum í 25 ár greitt öll árin í lífeyrissjóð átt rétt á framreikningu réttinda, verið búinn að greiða milljónir í sjóðinn samkvæmt lagaboði þá átti hann engin réttind af því að tekjurnar síðustu 4 árin fyrir veikindin hafi verið svo lágar að sjóðurinn liti svo á að hann hafi ekki orðið fyrir neinni tekjuskerðingu. Ástæða lágra tekna var auðvitað sú að drengurinn álpaðist í nám, og var rétt nýútskrifaður áður en hann dettur út af vinnumarkaði. Hann á sem sé að sætta sig við það að fá 0 krónur úr sínum lífeyrissjóði. En rekstarkostnaður allra lífeyrissjóða er 12 til 15 milljarða, en það er ekki til peningur til að koma í veg fyrir að sjóðsfélagi lendi í ævilanga fátækt. Lífeyrissjóðirnir eru sem sé einingis fyrir suma en ekki alla, og allra síst þá sem mest á þeim greiðslum þurfa á að halda? Hvað hefðu gömlu frumkvöðlar verkalýðshreyfingarinnar sagt við svona framkomu??? Benni Davíðs, Eðvarð Sigurðsson,Snorri Jónsson. Eða eins og Benedikt Davíðssson segir í sinni bók „ Mér er ennþá í minni þegar ég hóf störf á skrifstofu Trésmiðafélags Reykjavíkur 1953 , þá komu þangað oft gamlir trésmiðir sem vegna sjúkleika eða elli voru hættir stöfum. Ýmisir þessar manna voru blásnauðir þrátt fyrir langa starfsævi og leið mjög illa að þurfa nánast að lifa á bónbjörgum. Þetta var kannski fyrsta kveikjan að hugsun minni um hvernig úr mætti bæta segir hann“ En hefur þetta breyst? Það er óréttlátt að fólk sem glatar starfsgetunni, veikist eða lendir í slysi, sé dæmt til ævilangrar fátæktar. Og þrátt fyrir að eiga lífeyrissjóði sem eru nú að ná fullum þroska eins og sagt er. Þannig á Ísland ekki að vera. Lífeyriskerfið er mannana verk og það er í okkar valdi að breyta þeim. Og gleyma því ekki hverjum lífeyrikerfið á að þjóna. Eða má segja að byltingin borði börnin sín??? Höfundur er félagi í VM félagi vélstjóra og málmtæknimanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lífeyrissjóðir Stéttarfélög Mest lesið Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gríðarlegur velferðarábati með upptöku evru Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar