Spænskur stjórnmálamaður af hægri vængnum skotinn í andlitið Atli Ísleifsson skrifar 9. nóvember 2023 14:22 Alejo Vidal-Quadras sat á Evrópuþinginu frá 1999 til 2014. AP Spænski stjórnmálamaðurinn Alejo Vidal-Quadras, sem átti um árabil sæti á Evrópuþinginu og er einn af upphafsmönnum hægriöfgaflokksins Vox, var skotinn í andlitið á götu úti í höfuðborginni Madríd fyrr í dag.
Spænskir fjölmiðlar segja að hinn 78 ára Vidal-Quadras hafi verið skotinn í andlitið í miðju Salamanca-hverfinu í Madríd. Hann hafi svo verið fluttur alvarlega særður á La Princesa-sjúkrahúsið. Árásin átti sér stað um klukkan 13:30 að staðartíma. El Mundo segir að Vidal-Quadras hafi verið einn á ferð þegar maður hafi gengið upp að honum og skotið hann af um tveggja metra færi. Árásarmaðurinn hafi svo flúið af vettvangi á bifhjóli. Árásin átti sér stað í Salamanca-hverfinu í spænsku höfuðborginni.AP Vidal-Quadras er frá Barcelona, menntaði sig sem eðlisfræðingur og starfaði sem slíkur áður en hann hóf stjórnmálaferil sinn. Hann átti sæti á katalónska þinginu áður en hann var kjörinn á Evrópuþingið árið 1999 og átti þar sæti fyrir Lýðflokkinn (s. Partido Popular) til ársins 2014. Þá tilkynnti hann að hann hefði gengið til liðs við hægriöfgaflokkinn Vox. Hann var frambjóðandi Vox í kosningunum til Evrópuþingsins árið 2014 en tókst ekki að ná sæti í kosningum.
Spánn Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Sjá meira