Samskipti við eigendur húsnæðisins hafi verið til fyrirmyndar Margrét Björk Jónsdóttir skrifar 17. október 2023 20:01 Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, segir eigendur húsnæðisins að Funahöfða 7 hafa brugðist vel við ábendingum slökkviliðsins hvað varðar brunavarnir og hafi gert viðeigandi úrbætur. Vísir/Sigurjón/Vilhelm Slökkviliðstjóri segir samskipti við eigendur húsnæðisins við Funahöfða 7, þar sem maður lést í kjölfar eldsviða í gær, hafa verið til fyrirmyndar. Þúsundir búa í iðnaðarhúsnæði hér á landi sem hann segir að þurfi ekki endilega að vera slæmt.
Þrír voru fluttir á slysadeild í kjölfar brunans. Einn þeirra lést af sárum sínum en hinir tveir eru á batavegi. Eldsupptök eru enn ókunn en miðlæg deild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu rannsakar málið. Greint var frá því í dag að slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hafi gert úttekt á húsnæðinu í apríl á þessu ári. Í kjölfar þeirrar úttektar voru gerðar nokkrar athugasemdir og tækifæri gefin til úrbóta. Búið var að bæta úr öllum atriðum nema einu sem var gefinn aukinn frestur á, sem varðar brunastiga af annarri hæð. Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, segir samskipti við eigendur húsnæðisins hafa verið til fyrirmyndar. „Þeir voru alveg gjörsamlega meðvitaðir um hvað þurfti að gera og það var góð samvinna á milli okkar. Ef við horfum á allar staðreyndir, bruninn var í einu brunahólfi, það var ekki mikil reykútbreiðsla og viðvörunarkerfi fór í gang. Það eru allavega jákvæðar fréttir við þennan annars hræðilega atburð.“ Jón Viðar segist ekki hafa sjálfur hafa rætt við eigendurna eftir brunann í gær en veit til þess að aðrir slökkviliðsmenn hafi átt í samskiptum við þá. „Þeir eru náttúrulega, eins og allir aðrir, í sjokki yfir þessu. En stundum enda því miður hlutirnir á þennan máta.“ Funahöfði 7 er ekki á lista slökkviliðsins um ósamþykkt húsnæði sem farið er fram á að verði lokað. Þúsundir búa í iðnaðarhúsnæði Eftir bruna á Bræðaborgarstíg árið 2020 þar sem þrír létust, réðust Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Alþýðusambandið í að kortleggja hversu margir búa í atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og hvernig brunavörnum væri háttað. Í skýrslu sem gefin var út í fyrra kom fram að hátt í tvö þúsund manns byggju við slíkar aðstæður en nú virðist vera að sú tala sé mun hærri. „Það hefur orðið sprengja í þessu, gífurleg fjölgun. Það eru þúsundir sem búa við þessar aðstæður,“ segir Jón Viðar. Eldurinn kom upp í herbergi á fyrstu hæð hússins. Maður sem var inni í herberginu lést af sárum sínum. Vísir/Vilhelm Þrátt fyrir þennan mikla fjölda sem býr í iðnaðarhúsnæði segir hann að aðstæður séu ekki alltaf óviðunandi. „Við erum með húsnæði sem er algjörlega til fyrirmyndar, svo erum við með húsnæði sem er langt frá því að vera til fyrirmyndar. Það er okkar helsti fókus í dag, að huga að því húsnæði.“ Að búa í atvinuhúsnæði þýðir ekki endilega að það sé slæmt. Aðspurður um hvort aðrar kröfur séu gerðar til brunavarna í iðnaðarhúsnæði sem búið er í, heldur en almennu íbúðarhúsnæði, segir Jón Viðar að oft sé stigið skrefinu lengra. „Við erum oft að tala um ekki bara fimm aðila, heldur tíu, tuttugu, þrjátíu. Þetta er oft orðið í raun meira eins og gistiheimili. Og kröfur á gistiheimili eru meiri en á íbúðarhúsnæði.“ Bjartsýnn á að frumvarp nái fram að ganga Jón Viðar er bjartsýnn á að frumvarp sem til stendur að leggja fyrir Alþingi verði orðið að lögum fyrir áramót. Það gæfi slökkviliðinu heimild til að fara inn í íbúðarhúsnæði ef grunur leikur á að brunavarnir séu í ólagi. „Það yrði jákvæð breyting. Það geta verið íbúðarhúsnæði sem er búið að hólfa niður og kannski tugir einstaklinga sem leigja þar. Það eitt og sér getur verið varhugavert varðandi brunavarnir og öryggi. Síðan er líka sú breyting að þeir sem eru ekki með brunavarnirnar í lagi, þurfi sjálfir að greiða fyrir eftirlitið.“ Þetta er svipað og ef þú keyrir yfir á rauði ljósi, þá borgar þú þá sekt en ekki almenningur.
Bruni á Funahöfða Slökkvilið Reykjavík Mest lesið Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Sjá meira