Árshátíðir víða
Fyrirtæki á borð við Nova og Brandenburg fögnuðu með stæl á árshátíðum sínum á laugardagskvöld þar sem fjöldinn allur af íslensku tónlistarfólki steig á stokk. Sömuleiðis var Pragma, nemendafélag tækni- og verkfræðinema við Háskólann í Reykjavík, með stóra árshátíð í Kolaportinu.
Tónlistarmaðurinn Patrik kom fram á öllum ofannefndum viðburðum og átti því viðburðaríka helgi. Hann hafði þó að sjálfsögðu tíma til að birta mynd af klæðaburði sínum á Instagram.
Skvísutónleikar
Tónleikarnir Mamma þarf að djamma fóru fram í Háskólabíói á laugardagskvöld. Jóhanna Guðrún, Birgitta Haukdal, Stebbi Hilmars og Gunni Óla skemmtu tónleikagestum og Eva Ruza var kynnir.
„Mér líður eins og ég geti allt eftir þetta kvöld,“ segir skemmtikrafturinn og gleðisprengjan Eva Ruza Miljevic.
Dansarahjón
Hjónin og dansararnir Hanna Rún Bazev og Nikita Bazev lentu í fimmta sæti í flokki professional á Evrópumeistaramóti í Þýskalandi um helgina.
Ástfangin á ferðalagi
Athafnakonan Inga Tinna Sigurðardóttir og fyrrum handboltakappinn Logi Geirsson birtu myndir af sér á ferðlagi um Ítalíu og Mónakó.
Dansar sig í gegnum meðgönguna
Birgitta Líf Björnsdóttir dansar sig í gegnum meðgönguna og skemmti gestum í 23 ára afmæli Tapasbarsins í vikunni.
Þrítug ofurskutla
Flugfreyjan Andrea Sigurðardóttir bauð til veislu í tilefni af þrítugsafmæli sínu þar sem öllu var tjaldað til.
Fjöldi þjóðþekktra gesta mættu og fögnuðu með ofuskvísunni sem klæddist bláum pallíettukjól.
Tónlistarmennirnir Selma Björnsdóttir og Friðrik Ómar Hjörleifsson tóku vel valin lög, þar á meðal þekkta Eurovision smelli eins og þeim einum er lagið.
Feðgin í París
Stjörnukírópraktorinn Guðmundur Birkir Pálmason, þekktur sem Gummi kíró, fór með dóttur sinni til Parísar um helgina.
Þrítugur körfuboltakappi
Kristófer Acox, körfuboltakappi, fagnaði þrítugsafmæli sínu um helgina.
Lag um erfið tímabil
Tónlistarkonan Svala Björgvinsdóttir gaf út lagið Time á dögunum. Lagið fjallar um erfið tímabil í lífinu.
„Nýja lagið mitt er ég að peppa sjálfa mig til að taka einn dag í einu og vita að maður nær sér á strik aftur,“ segir Svala.
Rándýrt lúkk
Rapparinn Herra Hnetusmjör klæðist Prada smekkbuxum og Burberry skyrtu í nýrri þáttaröð strákabandsins IceGuys. Slíkar buxur kosta tæpar 400 þúsund krónur.
Súkkulaðikaka og stjörnuljós
Dansarinn, leiklistarneminn og Hatara meðlimurinn Sólbjört fagnaði 29 ára afmæli sínu með glæsilegri súkkulaðiköku á Tapas barnum.
Tvöfalt fimmtugsafmæli
Vinkonurnar Arna Gerður Bang alþjóðastjórnmálafræðingur og Ásdís Spanó myndlistarkona fögnuðu fimmtugsafmælum sínum í sameiningu með glæsilegri veislu á laugardagskvöldið.
Þórey Vilhjálmsdóttir, Soffía Sigurgeirsdóttir, Karen Kjartansdóttir, Ingibjörg Stefánsdóttir og fleiri glæsilegar konur landsins létu sjá sig og nutu vel, bæði í mat og drykk.

Sigurlaug Margrét Jónasdóttir fjölmiðlakona bauð í árlegt kampavínsboð á laugardagskvöldið. Þangað fjölmenntu vinkonur Sigurlaugar Margrétar, meðal annars hjá Ríkisútvarpinu, og supu kampavín og dilluðu sér við ljúfa tóna.
Júlía Margrét Einarsdóttir var kjörin kampavínsdrottning ársins. Meðal fyrri drottninga er Sigurlaug sjálf.
Sigríður Pétursdóttir kvikmyndafræðingur lýsti sunnudeginum ágætlega.
„Ég er timbruð tvo daga á ári. Í dag er annar þeirra. Kampavínsboðin hennar Sillu eru engu lík svo líðanin í dag er vel þess virði Takk fyrir mig elsku Silla og þið líka skemmtilegu og dansglōðu konur,“ segir Sigríður.