Svalast norðantil en mildara fyrir sunnan Atli Ísleifsson skrifar 4. október 2023 07:14 Gert er ráð fyrir hita á bilinu þremur til ellefu stigum. Vísir/Vilhelm Spáð er áframhaldandi lægðagangi fyrir sunnan og austan land sem mun beina hingað austan- og norðaustanáttum. Lægð gerist nærgöngul á morgun og verður því allhvass eða hvasst við suðurströndina.
Veðurstofan spáir austlægri átt í dag, átta til fimmtán metrum á sekúndu þar sem hvassast á Vestfjörðum. Gert er ráð fyrir hita á bilinu þremur til ellefu stigum þar sem svalast verður á norðanverðu landinu, en mildara syðra. „Lægðasvæðin fjarlægjast er nær dregur helgi og hæð færist yfir landið, en lægir því, léttir til og kólnar í veðri. Á sunnudag kemur lægð vestan frá Grænlandi og gengur í suðvestanstrekking með rigningu sunnan- og vestanlands og hlýnar heldur í bili,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Austlæg átt, víða 5-13 m/s, en hvessir heldur með suðuströndinni um kvöldið. Lítilsháttar rigning á Suður- og Vesturlandi, en annars stöku él. Hiti 0 til 7 stig, mildast sunnantil. Á föstudag: Austan- og norðaustan 8-15 m/s, hvassast við suðurströndina. Skýjað að mestu, en stöku skúrir eða él á víð og dreif. Hiti 0 til 5 stig. Á laugardag: Útlit fyrir suðvestlæga vinda, strekking norðvestantil, en annars mun hægari. Skýjað með köflum og úrkomulaust að kalla, en stöku skúrir vestanlands. Hiti 1 til 6 stig að deginum. Á sunnudag og mánudag: Líklega suðvestanstrekkingur með rigningu, en þurrviðri fyrir austan. Hlýnar í bili. Á þriðjudag: Gengur væntanlega í norðanhvassviðri með slyddu eða rigningu, en léttir til syðra og kólnar í veðri.
Veður Mest lesið Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Erlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Erlent Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Innlent Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Innlent Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent Spurning með sálina Innlent Fleiri fréttir Varhugaverðar hviður á Suðurlandi Víða allhvass vindur og úrkomubakki nálgast Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Allt að sautján stiga hiti Bjart og hlýtt sunnan heiða Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Hlýjast fyrir austan Kaldi eða strekkingur á suðvestan- og vestanverðu landinu Væta með stífri norðaustanátt Stíf norðanátt með rigningu víða um land Allvíða skúrir og lægð nálgast Víða rigning en hiti að átján stigum Úrkoma í flestum landshlutum í dag Úrkoma víða og hiti að sextán stigum Víða skúraleiðingar og hiti að fimmtán stigum Sextán stig en líkur á síðdegisskúrum Bjartviðri suðvestanlands en líkur á skúrum Allhvasst suðaustantil og sums staðar rigning Viðrar vel til hátíðarhalda á höfuðborgarsvæðinu Hiti að átján stigum norðan og vestantil Austlæg átt og víða líkur á vætu 250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Áfram rólegheitaveður en líkur á síðdegisskúrum Sólin sleikir landsmenn Áfram bongó í kortunum og nú um allt land „Gegnumgangandi bongó um helgina“ Hitinn náði yfir tuttugu stig Möguleiki á að hiti fari yfir tuttugu stig í höfuðborginni Möguleiki á tuttugu stiga hita Útlit fyrir besta dag sumarsins á föstudaginn Sjá meira