Lífið

Nýjustu sigur­vegarar Love Is­land í sitt hvora áttina

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Jess þótti sýna af sér mikinn þokka í tíundu seríunni og telja margir Bretar það hafa siglt sigrinum heim fyrir hana og Sammy í sumar.
Jess þótti sýna af sér mikinn þokka í tíundu seríunni og telja margir Bretar það hafa siglt sigrinum heim fyrir hana og Sammy í sumar.

Sigur­vegarar úr nýjustu seríunni af bresku raun­veru­leika­þáttunum Love Is­land, þau Jess Harding og Sam­my Root, eru hætt saman. Rúmir tveir mánuðir eru síðan þau fóru alla leið í þáttunum.

Breska götu­blaðið Daily Mail hefur eftir ó­nefndum heimildar­manni að parið hafi á­kveðið að kalla þetta gott. Heimildar­maðurinn er sagður náinn parinu og hann segir að það hafi verið Jess sem hafi átt frum­kvæðið að sam­bands­slitunum.

Parið átti ekki sjö dagana sæla í lúxu­s­villunni á Mall­or­ca í sumar við tökur á tíundu seríu raunveruleikaþáttanna vinsælu. Bjuggust raunar fæstir við að þau myndu bera sigur úr býtum í seríunni en Sam­my var dug­legur að velta öðrum kven­kostum fyrir sér.

Þá minntist hann jafn­framt á það að Jess væri í raun og veru ekki hans týpa. Það kom því mörgum á ó­vart þegar parið komst alla leiðina í úr­slit og enn fleirum á ó­vart þegar parið hreppti 50 þúsund sterlings­pund í vinnings­fé, eða því sem nemur rúmum 8,5 milljónum ís­lenskra króna.

„Hlutirnir hafa breyst síðan þau yfir­gáfu villuna. Jess áttaði sig á því að þau væru betur sett sem vinir,“ hefur Daily Mail eftir hinum ó­nefnda heimildar­manni.


Tengdar fréttir

Enn eitt Love Is­land parið í valnum

Enn eitt parið úr bresku raun­veru­leika­þáttunum Love Is­land er hætt saman. Að þessu sinni eru það þau Ron Hall og Lana Jenkins sem byrjuðu saman fyrir þremur mánuðum síðan í vetrar­út­gáfu raun­veru­leika­þáttanna vin­sælu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.