Lægðirnar suður í hafi en verða nærgöngulli á næstu dögum Atli Ísleifsson skrifar 3. október 2023 07:14 Spákort fyrir klukkan 14 í dag. Veðurstofan Talsverður lægðagangur er nú suður í hafi og verða lægðirnar nærgöngulli þegar líður að helginni. Veðurstofan gerir ráð fyrir að það verði yfirleitt fremur hæg austan- og norðaustanátt í dag.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það verði víða rigning og slydda eða snjókoma til fjalla á norðanverðu landinu, en skýjað og dáliltar skúrir syðra. Hiti verður nærri frostmarki fyrir norðan, en að ellefu stigum syðst. „Austlægari á morgun, strekkingur syðst, en annars hægari. Dálítil rigning á suðvestantil, en annars skýjað með köflum og stöku skúrir eða él og heldur svalara. Hvessir enn á fimmtudag, hvassviðri syðst um kvöldið. Lítilsháttar rigning á sunnanverðu landinu, en smá skúrir eða él fyrir norðan,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Austan og norðaustan 5-13 m/s, hvassast með suðurströndinni. Rigning öðru hvoru á Suður- og Vesturlandi, en dálitlar skúrir eða él um landið norðaustanvert. Hiti frá frostmarki í innsveitum á Norðausturlandi, upp í 8 stig syðst. Á fimmtudag: Austan og norðaustan 5-13 m/s, en 10-18 um kvöldið, hvassast við suðurströndina. Dálítil rigning öðru hvoru á Suður- og Vesturlandi, en annars stöku él. Hiti 0 til 6 stig. Á föstudag: Gengur í austan- og norðaustanhvassviðri með rigningu, en smá slyddu eða snjókomu fyrir norðan. Hiti 0 til 5 stig. Á laugardag: Líklega ákveðin norðaustanátt með rigningu eða slyddu og snjókomu til fjalla, en þurrviðrisunnan heiða. Áfram fremur svalt í veðri. Á sunnudag: Útlit fyrir norðlæga átt með slyddu eða snjókomu norðaustantil, en annars bjart og svalt veður. Á mánudag: Snýst líklega í austanátt með rigningu eða slyddu sunnantil.
Veður Mest lesið Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Fjöldi svæða á landinu sambandslaus með öllu Innlent Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Innlent Inflúensan á uppleið og seinni bylgjan handan við hornið Innlent Finnst brotið á réttindum barnsins að orlofið sé skert Innlent Strætó ekið á hjólreiðamann í Laugardal Innlent Gjaldtaka af bílum sé hærri en fjárframlög til vegagerðar Innlent Páll Winkel meðal umsækjenda um embætti ráðuneytisstjóra Innlent Sanna býður sig fram undir merkjum Vors til vinstri Innlent Staðsetning Íslands „hernaðarlega mjög mikilvæg“ Innlent Fleiri fréttir Víða allhvass vindur og rigning Siggi stormur spáir rauðum jólum Hellidemba í kortunum og líkur á þrumum Stormur gengur yfir sunnan- og vestanvert landið Austan stormur og gular viðvaranir á morgun Hvassviðri eða stormur og gular viðvaranir Bæta við gulri viðvörun á Vestfjörðum og miðhálendi Hvasst sunnantil og víða rigning eða slydda Hvassviðri syðst á landinu Smá rigning eða slydda víða Hiti gæti náð upp undir 10 gráður Rigning eða slydda sunnan- og vestanlands Bjart sunnan- og vestanlands en él norðan- og austantil Allhvasst syðst en hægari vindur annars staðar Bjartviðri suðvestantil en hvasst suðaustanlands Blæs hressilega af austri Stormur í kortunum Snjódýptin geti náð fjörutíu sentimetrum Gul viðvörun vegna snjókomu Snjókoma í kortunum Kuldinn bítur í kinnar landsmanna Slær í storm suðaustantil en höfuðborgarsvæðið í skjóli Allvíða él eða skúrir og flughált víða um land Hlýnar í veðri og gæti orðið flughált Vara við flughálku í fyrramálið Skúrir á víð og dreif og hiti að sex stigum Hefðbundin lægð með rigningu og allhvössum vindi Hvít jörð á höfuðborgarsvæðinu og víðar Frost og víða fallegt vetrarveður Víða vindasamt á landinu Sjá meira