Stöku skúrir eða él á norðanverðu landinu Atli Ísleifsson skrifar 22. september 2023 07:21 Hiti verður á bilinu tvö til átta stig í dag. Vísir/vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir að það snúist í austlæga átt í dag, þrjá til átta metra á sekúndu en átta til þrettán norðvestantil. Reikna má með stöku skúrum eða éljum á norðanverðu landinu en að það stytti upp síðdegis.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði léttskýjað sunnanlands en þykkni upp í morgunsárið og sums staðar rigning. Þurrt að kalla á Suðausturlandi. Hiti verður á bilinu tvö til átta stig og verður hlýjast syðst á landinu. „Á morgun verður hægt vaxandi suðaustanátt, 5-13 m/s annað kvöld en 13-18 við suðurströndina. Víða rigning en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 5 til 10 stig. Á sunnudag verður stíf norðaustanátt og víða rigning en bjart með köflum á Vesturlandi. Hiti breytist lítið,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag (haustjafndægur): Austan og suðaustan 5-10 m/s, en 10-18 með suðurströndinni. Rigning um tíma sunnan- og vestanlands, en lengst af þurrt um landið norðaustanvert. Hiti 2 til 8 stig, hlýjast syðst. Á sunnudag: Norðaustan 10-18 en heldur hvassara á Vestfjörðum. Víða rigning en úrkomulítið um landið suðvestanvert fram að kvöld. Hiti 2 til 8 stig, svalast í innsveitum fyrir norðan. Á mánudag og þriðjudag: Norðan- og norðaustanátt 8-15 og súld eða rigning með köflum norðan- og austanlands, hiti 2 til 6 stig. Þurrt að kalla sunnan heiða og hiti 6 til 10 stig yfir daginn. Á miðvikudag: Ákveðin norðlæg átt og víða rigning en bjart að mestu suðvestantil. Hiti 2 til 8 stig, svalast á Vestfjörðum. Á fimmtudag: Norðlæg eða breytileg átt og rigning en lengst af þurrt sunnan- og austantil. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Vaktin: Bílaplanið þakið hrauni Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Jafnast ekki út að vera með annan fótinn í hrauni og hinn í ís Innlent Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Stöðug virkni í nótt og og litlar breytingar Innlent Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Erlent Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Erlent Hótaði heimilismönnum með skærum Innlent Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Erlent Fleiri fréttir Áfram kalt og bætir í vind á morgun Áfram kalt á landinu en bjartviðri sunnan heiða Áfram köld og norðlæg átt Heimskautaflofti beint til landsins í sífellu Stinningskaldi og él fram í miðja viku og svo kólni frekar Viðvaranirnar sumar orðnar appelsínugular Allhvöss suðvestanátt og hlýtt en illviðri á morgun Suðvestan hvassviðri norðan- og austantil Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið vegna norðan áhlaups Suðvestan stormur, rigning og gular viðvaranir Rosalegur hiti á Akureyri seint um kvöld í nóvember Gular viðvaranir vegna hvassviðris eða storms Allt að tuttugu stiga hiti Næsta lægð væntanleg á morgun Víðast hvar rólegt en viðvörun á Vesturlandi Bætir smám saman í vind Á enn eftir að hvessa meira á Norðausturlandi Ofsaveður í kortunum norðvestantil og viðvaranir í gildi Varað við ofsaveðri á Vestfjörðum og Norðurlandi Lægir en næsta lægð nálgast úr suðri Ekki lægri meðalhiti frá árinu 1997 Víða hvasst og gul viðvörun vegna vinds á Snæfellsnesi Spá stormi á Snæfellsnesi á morgun Dregur smám saman úr vindi og úrkomu Rigning eða súld um mest allt land Búist við austlægri átt Fimmtán stiga frost á Grímsstöðum á Fjöllum í nótt Élja- og snjókomubakkar sækja að úr vestri og norðri Vestan- og suðvestanátt með skúrum eða éljum Lægð nálgast úr suðvestri Sjá meira