„Er það ósk allra að heilbrigðisstarfsfólk fari í gegnum svona ferli?“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 30. ágúst 2023 22:55 Ásta Kristín Andrésdóttir fór að lokum með skaðabótamál sitt á hendur ríkinu fyrir Hæstarétt. Vísir/Vilhelm Ásta Kristín Andrésdóttir, meðstjórnandi Heilsuhags, vill vekja fólk til umhugsunar um það hve flókin atvik geta verið sem upp koma á spítala og að yfirleitt sé aldrei neinum einum um að kenna. Hún kallar eftir breytingum á verkferlum lögreglu í slíkum málum og vill að hlutlaus nefnd fari yfir slík mál áður en lögregla taki þau til rannsóknar.
Þetta kemur fram í aðsendri grein Ástu sem birtist á Vísi í kvöld. Tilefnið eru fréttir af því að lögregla rannsaki andlát á Landspítalanum fyrr í mánuðinum. Árið 2015 var Ásta Kristín Andrésdóttir ákærð fyrir manndráp af gáleysi og fyrir brot á hjúkrunarlögum á þeim grundelli að hún hefði gleymt að tæma loft úr kraga barkaraufarrennu þegar hún tók sjúkling úr öndunarvél 3. október 2012. Ásta var sýknuð af ákærunni og fór hún fram á miskabætur vegna málsins í kjölfarið. Segist hafa endurupplifað málið Í grein sinni á Vísi segist Ásta vona að haldið sé vel utan um alla þá sem tengist andlátinu. Hún segist vona að teymið á Landspítalanum sjái að það sé ljós við enda gangsins, það sjáist ekki strax en það muni koma. „Ég fór í endurupplifun eftir þessar fréttir um atvik á skurðstofu. Það ristir dálítið djúpt vegna þess að þetta var mín starfstöð í 12 ár. Og allir sem vinna þar eru með gull af hjarta, manngæsku, eru öryggismeðvituð, einstaklega faglega fær og vinna sína vinnu af heilindum.“ Hún segir sorgina og sektartilfinninguna vegna atvika sem gerist í heilbrigðiskerfinu fylgja öllum sem komi að. Sektartilfinningin geti verið yfirþyrmandi. Kallar eftir úrbótum „Ég kalla eftir úrbótum. Ég kalla eftir gegnsærri upplýsingagjöf til aðstandenda, heilbrigðisstarfsfólks og almennings. Það eru ekki allir sammála um að svona löggjöf eigi að fara í gegn. En það er meirihluti sem er sammála og ég held að þessi löggjöf muni gagnast bæði aðstandendum og heilbrigðisstarfsfólki.“ Ásta spyr hvað sé hægt að gera öðruvísi þegar slík atvik komi upp, hvernig verði hægt að hlúa að aðstandendum og lofa þeim upplýsingum og heiðarleika og hvernig sé hægt að hlúa að viðkomandi sakborningi, sem eigi ótrúlega erfitt. Hún segist hafa viljað hverfa þegar hún hafi verið sjálf í sömu stöðu. „Hvernig geta rannsóknarlögregla, Landlæknisembættið og Háskólasjúkrahúsið betrumbætt þetta ferli, þannig að málið endi ekki með ósköpum fyrir heilbrigðisstarfsmanninn?“ Horfa má á frétt Stöðvar 2 frá árinu 2015 þegar Ásta var sýknuð hér fyrir neðan. Þróaði með sér áfallastreituröskun Ásta segist hafa þróað með sér alvarlega áfallastreituröskun sem hún muni þurfa að takast á við út lífið, enda hafi hún verið venjuleg húsmóðir í Garðabæ sem allt í einu var lent í því að vera sakborningur í sakamáli við að vinna vinnuna sína. Hún kallar eftir því að komið verði upp verklagi þar sem tekist verði á við líðan heilbrigðisstarfsmanns í slíkum aðstæðum. „Og ég hef sagt þetta áður. Ég var bara venjuleg húsmóðir í Garðabæ, sem var allt í einu lent í því að vera sakborningur í sakamáli. Og ég var bara að vinna vinnuna mína. Er það ósk allra að heilbrigðisstarfsfólk fari í gegnum svona ferli?“ Hún segir að sig hafi langað að hverfa þegar hún hafi verið í þessum sporum. Vanlíðanin hafi fylgt henni fimm árum eftir atburðina. Vill að mannlegt eðli sé viðurkennt „Mér finnst vanta verklag milli rannsóknarlögreglu, LSH og Landlæknis um hvernig sé tekið á þessum málum, þannig að það fari enginn heim með sektarkennd sem getur valdið öðru dauðsfalli. Já ég segi það opið, því ég var þar - langaði að hverfa. Og var búin að gera áætlun um það hvernig og hvenær. Ég var búin að gefa mér leyfi á ákveðnum tíma að kveðja heiminn, ef ég væri enn í þessari gríðarlegu vanlíðan sem ég var í. Og nota bene, það var 5 árum eftir sýknudóminn minn.“ Ásta segir að sér finnist það vanta að mannlegt eðli sé viðurkennt. Að fólk sem lendi í slíkum atvikum eigi mjög auðvelt með að kenna sér um. Rannsókn lögreglu ætti að vera skilvirkari, nákvæmari og lýsa aðstæðum eins og þær eru. Ásta segist vilja vekja fólk til umhugsunar um þessi mál og hve flókin þau geti verið. „Ég kalla eftir breytingum á verkferlum lögreglu í svona málum. Ég kalla eftir að lögreglan sýni fram á að hún rannsaki málin í þaula, reyni að skilja það sem er læknisfræðilega flókið. Og helst myndi ég vilja hlutlausa nefnd sem færi yfir atvikin áður en lögregla tekur til rannsóknar.“ Grein Ástu í heild sinni á Vísi.
Hjúkrunarfræðingur sýknaður af ákæru um manndráp Heilbrigðismál Landspítalinn Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Sjá meira