Vaðlaheiðagöng töpuðu 1,3 milljarði vegna hárra fjármagnsgjalda
![Upphafleg kostnaðaráætlun Vaðlaheiðarganga hljóðaði upp á 8,7 milljarða króna á verðlagi ársins 2011 en þegar upp var staðið kostuðu göngin um 17 milljarða króna sem fengust í formi láns frá ríkissjóði.](https://www.visir.is/i/BDBEE45E30A6566F2CE3D2E5A9B3438197ADD2582C740969E6309B8AC1F35222_713x0.jpg)
Há fjármagnsgjöld leiddu til þess að Vaðlaheiðargöng voru rekin með miklu tapi í fyrra. Félagið þarf að greiða að lágmarki tvisvar á ári allt laust fé umfram 50 milljónir króna inn á verðbættan höfuðstól láns, samkvæmt viðauka við lánasamning sem gerður var síðasta sumar þegar fjárhagur þess var endurskipulagður og eignarhaldið færðist nær alfarið í hendur ríkisins.