Vaxtaálag á lánum banka til heimila og fyrirtækja sjaldan verið lægra
![Stóru viðskiptabankarnir skiluðu á bilinu um 10 til 14,5 prósenta arðsemi á fyrri árshelmingi 2023. Það er nokkuð lakari afkoma en í samanburði við aðra banka á hinum Norðurlöndunum.](https://www.visir.is/i/74474EDAE5320A9F4B275E110FE698880CAC48EA222A94C160CAD90FD8DEA79F_713x0.jpg)
Vaxtaálagið á nýjum útlánum í bankakerfinu til atvinnulífsins og heimila hefur fallið skarpt á síðustu misserum, einkum þegar kemur að íbúðalánum en munurinn á markaðsvöxtum og þeim vaxtakjörum sem bankarnir bjóða á slíkum lánum er nú sögulega lítill. Aukin samkeppni á innlánamarkaði á síðustu árum hefur meðal annars valdið því að vextir á óbundnum sparireikningum hafa nú aldrei verið hærri sem hlutfall af stýrivöxtum Seðlabankans.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/3CDC685C203A4D1FFD512C8EE811B9966F6E4C1D551781978BE95D943C4D79E4_308x200.jpg)
Lífeyrissjóðir ekki lánað meira til heimila frá því fyrir faraldurinn
Hröð umskipti eru að verða á íbúðalánamarkaði þar sem hlutdeild bankanna er orðin hverfandi á sama tíma og lífeyrissjóðirnir, sem bjóða hægstæðari lánakjör um þessar mundir, eru farnir að auka talsvert umsvif sín. Hrein ný útlán lífeyrissjóðanna til heimila í júní voru þau mestu í einum mánuði frá því fyrir faraldurinn í upphafi ársins 2020 en sjóðirnir hafa lánað um helmingi meira en bankarnir á fyrri árshelmingi 2023.
![](https://www.visir.is/i/9D9127F63AEB9535DFA05FD238586C46CF9EC750D4BA0506DCF601B6ED53E2CA_308x200.jpg)
Neikvæðir raunvextir á innlánum „geta ekki gengið til lengdar“
Ef raunvextir á innlánum heimila og fyrirtækja í bönkunum eru að stórum hluta neikvæðir um langt skeið er hætta á að það muni að lokum draga mjög úr sparnaði og þá um leið skrúfa fyrir aðgengi að lánsfé í hagkerfinu, að sögn seðlabankastjóra.