Körfubolti

Hitti úr 25 af 27 þriggja stiga skotum sínum og sló metið | myndskeið

Hjörvar Ólafsson skrifar
Sabrina Ionescu sallaði niður þriggja stiga skotunum. 
Sabrina Ionescu sallaði niður þriggja stiga skotunum.  Vísir/Getty

Bandaríska körfuboltakonan Sabrina Ionescu sló í gærkvöldi metið í þriggja stiga keppni fyrir stjörnuleikinn bæði í WNBA og NBA en hún setti þá niður 25 af 27 skotum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna. 

Ionescu sem leikur fyrir New York Liberty fékk 37 stig fyrir þessa skotseríu sína en sjá má ótrulega hittni hennar í myndskeiðinu hér að neðan. 

Fyrra metið áttu Steph Curry og Tyrese Haliburton saman en þeir fengu hvor um sig 31 stig úr þriggja stiga skotum sínum. 

Stjörnuleikur WNBA verður spilaður í Las Vegas í nótt en mikið hefur verið um dýrðir síðustu daga og lokahnykkurinn er svo leikurinn sjálfur. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×