Viðskipti erlent

Spoti­fy segir upp hlað­varps­samningnum við Harry og Meg­han

Atli Ísleifsson skrifar
Harry og Meghan eru með allskonar járn í eldinum.
Harry og Meghan eru með allskonar járn í eldinum. EPA

Spotify hefur ákveðið að segja upp samningi sínum við hertogann og hertogaynjuna af Sussex, Harry og Meghan. Síðustu misserin hefur parið framleitt hlaðvarpið Archetypes fyrir streymisveituna.

Sagt er frá þessu í sameiginlegri yfirlýsingu frá Spotify og félagi þeirra Harry og Meghan þar sem þau hafi sammælst um halda „hvort í sína áttina“.

BBC segir frá því að Spotify hafi ákveðið að ráðast ekki í framleiðslu á annarri þáttaröð af Archetypes, en alls hafa verið framleiddir tólf þættir síðan í ágúst 2022.

Samningurinn var gerður síðla árs 2020 og var á sínum tíma metinn á 25 milljónir bandaríkjadala, um 3,5 milljarðar króna. Var þá stefnt að því að framleiða nokkrar þáttaraðir, en nú er ljóst að einungis verður um eina að ræða.

Samningurinn við Spotify var einn af nokkrum viðskiptasamningum sem Harry og Meghan gerðu eftir að þau létu af konunglegum skyldum og fluttust til Bandaríkjanna.

Í þáttunum Archetypes ræddi Meghan meðal annars við heimsfrægar konur á borð við tennisstjörnuna Serena Williams og söngkonuna Mariah Carey um þær staðalímyndir sem konur þurfa að búa við.

Harry og Meghan segjast stolt af hlaðvarpsþáttunum, en þættirnir unnu meðal annars til verðlauna sem besta hlaðvarp ársins á People's Choice Award í Los Angeles í desember.

Fréttirnar nú koma eftir að stjórnendur Spotify tilkynntu um að tvö hundruð manns í hlaðvarpdeild fyrirtækisins yrði sagt upp.


Tengdar fréttir

Harry og Meg­han nærri því að lenda í stór­slysi

Her­toga­hjónin af Sus­sex, Harry og Meg­han, segjast hafa verið ná­lægt því að lenda í stór­slysi í gær vegna ljós­myndara sem veittu þeim eftir­för í New York þar sem þau yfir­gáfu verð­launa­há­tíð.

Segist ekki hafa verið Meg­han Mark­le í dular­gervi

Velska tónskáldið Sir Karl Jenkins neitar því að hann hafi verið Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex í dulargervi við krýningu Karls Bretakonungs síðastliðna helgi, í bráðfyndnu myndbandi þar sem hann útskýrir klæðnað sinn. Horfa má á myndbandið hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×