Áritaða Astrópíu eintakið stendur upp úr
„Hamingjan er hugarástand sem er jafngilt hvort sem það eru skin eða skúrir“
Blaðamaður ræddi við meðlimi Celebs en hljómsveitina skipa Suðureyrar systkinin Valgeir Skorri Vernharðsson, Hrafnkell Hugi Vernharðsson og Katla Vigdís Vernharðsdóttir. Þau vöktu athygli í Söngvakeppninni í ár þar sem þau höfnuðu þriðja sætinu á lokakvöldinu með lagið Dómsdagsdans, eða Doomsday Dancing.
„Við erum heldur betur glöð að hafa tekið þátt í Söngvakeppninni. Þetta er ógleymanleg reynsla, að vera uppi á þessu sviði fyrir framan alþjóð og það opnaði margar dyr ásamt því að skapa magnaðar minningar.
Allt teymið sem kom að þessu, bæði hjá okkur Celebs genginu og starfsfólkið á RÚV, var alveg frábært. Tengslanetið víkkaði verulega og vinabönd sem spruttu fram voru ekki af verri endanum.
Hápunkturinn reynslunar er vafalaust áritaða eintakið af Astrópíu,“
segja systkinin, sem fengu eftirminnilega Ragnhildi Steinunni til að veita eiginhandaráritun á gömlu Astrópíu eintaki.
Í spilaranum hér að neðan má heyra lagið Bongó, blús og næs:
Treysta á það jákvæða
Systkinin sækja í léttleika og jákvæðni í nýja laginu sínu ásamt því að snerta aðeins á ádeilu.
„Ef Íslendingar biðu eftir góðu veðri til að fara í útilegu, þá færum við aldrei í útilegu. Það eru þúsund og ein ástæða til þess að nenna einhverju ekki og að vera í fýlu en allar þær skipta litlu máli ef maður setur traust sitt á það jákvæða. Skúli fúli mun ávallt reyna að rukka okkur fyrir sólskinið en hamingjan er hugarástand sem er jafngilt hvort sem það eru skin eða skúrir.
Okkur langaði líka svolítið að reyna að kjarna einhverja stemningu, Íslendinginn í íslenska sumrinu jafnt og að spegla ástandið í samfélaginu þessa dagana. Stjórnvöld hafa lítið verið að gera varðandi verðbólgu og húsnæðisástand, kennandi kjarabaráttu verkalýðsins um verðbólgu og manni finnst eins og næstu aðgerðir sem verða kynntar gætu alveg eins verið að það eigi að fara að rukka fyrir sólskinið,“ segja þau um innblástur fyrir laginu.

Tónlistin maraþon ekki spretthlaup
Systkinin segja að það sem skiptir þau mestu máli í tónlistinni sé einfaldlega að hafa gaman að henni.
„Tónlistin getur oft verið svaka dramatísk en maður þarf að stoppa sig af og endurhugsa stöðuna ef maður er farinn að pína sig til að spila og syngja. Tónlistin, eins og svo margt annað í lífinu, er maraþon ekki spretthlaup.
Maður þarf að taka sigrum og ósigrum eins og þeir koma, muna að anda með nefinu og minna sig á að við erum ekki músíkin, músíkin er það sem við gerum, og við getum alltaf samið annað lag frekar heldur enn að láta stakt lag móta sjálfsmyndina meira en þörf er á.“

Celebs stefna á að spila víða um landið í sumar samhliða því að taka upp nýtt efni sem verður frumflutt á Iceland Airwaves hátíðinn seinna á árinu.
„Svona á næstunni ætlum við bara að fókusa á þrennt, það er að semja, spila og hafa gaman af sumrinu. Það er alls konar fjör á planinu í náinni framtíð. Við stefnum á að semja og taka upp plötu á næstu misserum, svo eru tónleikar hér og þar sem við erum spennt til að spila á. Ef til vil er of snemmt að byrja að hæpaAirwaves tónleikana okkar í nóvember en við gerum það samt, því við erum svo spennt yfir þeim. Mætið með læti, það verður sturluð stemning, við lofum því, segja systkinin að lokum.“
Finnska Eurovision stjarnan Kaarija trónir á toppi Íslenska listans í þessari viku með lagið Cha Cha Cha en Daniil fylgir fast á eftir ásamt Friðriki Dór með lagið Aleinn.
Íslenski listinn er fluttur alla laugardaga á milli klukkan 14:00 og 16:00 á FM957.
Lög íslenska listans:
Íslenski listinn á Spotify: