Strandveiðar án kvóta Magnús Jónsson skrifar 30. maí 2023 15:01 Eins og kunnugt er gaf matvælaráðherra út þá yfirlýsingu í upphafi ferils síns sem ráðherra sjávarútvegsins, að hún vildi með skipun stærstu nefndar sögunnar undir merki “Auðlindin okkar” stuðla að meiri samfélagslegri sátt um alla umgjörð sjávarútvegsins. Hingað til hefur ekki náðst mikill árangur í þessu hjá ráðherra. Þvert á móti hefur henni tekist að skapa úlfúð og deilur meðal smábátasjómann um flest þau mál sem hún hefur lagt fram. Nægir þar að nefna frumvarp um veiðistjórn grásleppu og frumvarp um svokallaða aflvísa þar sem auka á togveiðiheimildir í nafni umhverfisverndar upp í fjörur víða um land. Síðast en ekki síst lagði ráðherra nýlega fram frumvarp um svæðaskiptingu strandveiða, þar sem landshlutum, útgerðarstöðum umhverfis landið sem og útgerðum smábáta er att saman með því að hverfa til fyrirkomulags við strandveiðar sem var við líði fyrir 2018 og flestir voru sammála um að væri óhagkvæmt,og hættulegt. Skemmdarverk á strandveiðikerfinu Það er umhugsunarefni að á sama tíma og meira en 70% þjóðarinnar sem og landsfundur VG frá sl. vetri, vill efla strandveiðar stórlega gengur ráðherra VG þvert gegn þessum vilja bæði þjóðarinnar og sinna eigin flokksmanna og hyggst fremja skemmdarverk á því fyrirkomulagi við strandveiðar sem góð sátt var um meðal langflestra smábátasjómanna. Fyrirkomulag sem var lögbundið 2018, þ.e. allt að 12 veiðidagar á mánuði fjóra mánaði á ári með stífum takmörkunum á ýmsum sviðum. En því miður var í lögin settur fyrirvari um kvóta á heildarafla alls flotans og stöðvunarskyldu Fiskistofu á veiðum, færi heildarafli yfir tiltekið magn. Magn sem sagt er ákveðið í nafni vísinda en sem í reynd hefur sáralítið með náttúruvísindi að gera eins og ég hef lært þau. Vísindi sem að allmiklu leyti byggist á tilgátum og tölfræði sem fáir sem koma nálægt fiskveiðum hafa trú á. Er því rétt að skoða vísindalegar forsendur fyrir heildarkvóta á strandveiðar. Gagnrýniskýrsla frá 2002 og reynslan síðan Fyrir rúmum tveimur áratugum fékk þáverandi sjávaútvegsráðherra Árni M. Matthiesen fiskifræðinginn Tuma Tómasson skólastjóra sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna til að gera úttekt á aðferðum og rannsóknaárangri Hafrannsóknarstofnunar. Kom skýrslan“Fagleg gagnrýni á stofnmat og veiðiráðgjöf Hafrannóknastofnunarinnar” útárið 2002. Af einhverjum ástæðum fékk þessi skýrsla litla umfjöllun og hafði ég lengi á tilfinningunni að henni hefði verið stungið ofan í skúffu í ráðuneytinu, henni læst og lyklinum hent. En nú hef ég fundið hana á gagnalista “Auðlindarinnar okkar” þótt enn fari engum sögum af umfjöllun um hana þar. Í þessari skýrslu voru einkum teknir til umfjöllunar fjórir meginþættir sem lúta af rannsóknum og ráðgjöf Hafró en þeir eru: Náttúruleg afföll Áhrif stærðar hrygningarstofns á viðkomu Áhrif stofngerðar á afrakstur Hvort um sé að ræða fleiri en einn stofn Hafa verður í huga að þegar þessi skýrsla var unnin hafði kvótakerfið verið rekið í tæp 20 ár og og reynsla af ráðgöfinni orðin álíka gömul. Nú hafa bæst við önnur 20 ár og er því áhugavert að skoða hvort það breytir einhverju um fyrri gagnrýni. Ein af grundvallarforsendum ráðgjafarinnar er að árleg afföll í fiskistofni eða náttúruleg dánatala sé þekkt. Aðeins ein rannsókn hefur farið fram á þessum þætti en hana vann Jón Jónsson fiskifræðingur árið 1960 og fékk þá út að árleg afföll í þorski eldri en 10 ára væru um 18%. Hefur þessi meira en 60 ára gamla rannsókn síðan verið heimfærð upp á alla aldursflokka yfir 3 árum óháð æti, umhverfisaðstæðum í hafinu og samspili við aðra stofna. Tumi bendir á að flestum þyki líklegt að náttúrulegur dauði sveiflist töluvert ekki síst í yngri fiski. Sé hins vegar alltaf gert ráð fyrir sömu afföllum þurfi stöðugt að vera “leiðrétta” útreikninga eða stofnmat aftur í tímann. Þetta hefur sýnt sig vera nánast regla hjá Hafrannsóknastofnun síðustu 20 árin og “leiðréttingin” oft stórfelld (100 þúsund tonn eða meira). Hefur Hafró yfirleitt talað um of- eða vanmat á stofnstærð þótt miklu líklegra sé að breytileikinn í reiknilíkaninu sé fyrst og fremst náttúruleg afföll. Hér er ekki ástæða til að rekja þær kenningar sem settar hafa verið fram um samspil hrygningarstofns og nýliðunar enda hefur nánast engin fylgni sést þarna á milli hér við land. Fyrir fáum árum mældi Hafró hrygningarstofninn í þorski meira en 600.000 tonn eða það mesta í um 60 ár. Þetta hafði hins vegar engin sýnileg áhrif á nýliðun og raunar hefur enginn sterkur nýliðunarárgangur komið fram í þorski í tæp 40 ár. Hafa fiskifræðingar engar skýringar getað gefið á þessu og er kannski eitt besta dæmið um þekkingarskortinn sem enn er til staðar þegar kemur að forsendum ráðgjafarinnar. Í skýrslu Tuma er bent á að sú meginstefna Hafró að vernda ókynþroska fisk undir 5 ára aldri sé umdeild. Til þess að sú stefna gangi upp þarf náttúruleg dánartala alltaf að vera lág (og föst) og vöxtur einstaklinga óháður stærðarsamsetningu stofnsins. Hvorugu er hins vegar til að dreifa. Þróun í kynþroskaaldri bendir til þess að þessi stefna og þessar forsendur standist alls ekki og að með henni sé stöðugt verið að draga úr afraksturgetu þorskstofnins. Raunar hefur á síðari árum einnig verið rætt um hvort að með þessari nýtingarstefnu sé verið að breyta erfðaeiginleikum stofnsins með algerlega ófyrirséðum afleiðingum. Aflamarkskerfið sem tekið var upp 1983 gerir í meginatriðum ráð fyrir að í hafinu umhverfis Ísland sé um einn þorskstofn að ræða. Með tímanum hefur þó komið æ betur í ljós að svo er alls ekki. Mikinn fjölda smærri stofna er hér að finna og þótt um náinn skyldleika sé að ræða eru þessir staðbundnu stofnar meira og minna ótengdir stóra eða stóru stofnunum við Suður- og Vesturland. Þar sem um mismunandi vaxtaraðstæður milli hafsvæða umhverfis landið er að ræða þurfi að beita mismunandi sóknarmynstri og veiðistjórn. Engar forsendur fyrir heildaraflamarki á strandveiðum Með vísan til þess sem sagði í skýrslu Tuma frá 2002 og í ljósi reynslunnar síðan tel ég einsýnt að engar þekkingarlegar forsendur voru og eru enn síður í dag fyrir því að setja það magn sem líklega næst með strandveiðum í heildarkvóta. Miðað við þann fjölda báta sem stundar þessar veiðar og breytileika í gæftum og aflabrögðum er afar ólíklegt að heildarafli fari yfir 15.000 tonn. Það er aðeins brot af þeim skekkjumörkum og “leiðréttingum” sem augljóslega eru í árlegri ráðgjöf Hafró. Að halda öðru fram er ekkert annað en blekking eða afneitun á þeirri ófullkomnu og umdeildu þekkingu sem ráðgjöfin byggist á. Því er hér með skorað á stjórnvöld og Alþingi að taka strandveiðarnar út úr heildarkvóta enda vita allir sem vilja vita að handfæraveiðar geta aldrei gengið nærri nokkrum stofni. Höfundur er veðurfræðingur og formaður Drangeyjar- smábátafélags Skagafjarðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjávarútvegur Mest lesið Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun