Fá aftur tvöfaldan meistaradúett Sindri Sverrisson skrifar 22. maí 2023 13:00 Thelma Dís Ágústsdóttir og Sverrir Þór Sverrisson endurnýja samstarf sitt sem skilaði svo miklu síðast. Agnes María Svansdóttir og Anna Lára Vignisdóttir ætla að spila áfram með Keflavík. Facebook/@keflavikkarfa Kvennalið Keflavíkur í körfubolta hefur endurheimt tvær algjörar aðalpersónur frá tímabilinu 2016-17 þegar liðið vann síðast Íslandsmeistaratitilinn.
Sverrir Þór Sverrisson hefur verið ráðinn þjálfari liðsins á nýjan leik en hann tekur við af Herði Axel Vilhjálmssyni sem er orðinn leikmaður Álftaness. Sverrir, sem var aðstoðarþjálfari karlaliðs Keflavíkur í vetur, hefur tvívegis áður verið þjálfari kvennaliðs Keflavíkur um tveggja ára skeið, og þrívegis hefur liðið orðið Íslandsmeistari undir hans stjórn. Liðið vann tvöfalt árið 2017 og varð svo bikarmeistari 2018. Thelma Dís Ágústsdóttir var lykilmaður í þessum titlum en fór svo til Bandaríkjanna þar sem hún spilaði körfubolta og sinnti háskólanámi. Thelma Dís snýr nú aftur til Keflavíkur en hún var valinn leikmaður ársins í efstu deild árið 2017. „Ég er bara ótrúlega spennt að vera komin heim í Keflavík. Mér líst mjög vel á liðið enda eru þetta flestar stelpur sem ég spilaði með áður en ég fór út. Sverrir var náttúrulega líka að þjálfa okkur þá þannig að ég er spennt að spila fyrir hann aftur og vonandi vinna einhverja titla fyrir Keflavík,“ sagði Thelma í tilkynningu frá Keflavík. Þar var einnig greint frá því að Agnes María Svansdóttir og Anna Lára Vignisdóttir hefðu framlengt samninga sína við Keflavík.
Subway-deild kvenna Keflavík ÍF Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Enski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Sjá meira