Góður leikur Elliða Snæs í sigri Gummersbach Smári Jökull Jónsson skrifar 18. maí 2023 18:44 Línumaðurinn Elliði Snær skoraði aðeins frá miðju í kvöld. Vísir/Vilhelm Gummersbach vann góðan sigur á Bergischer þegar liðin mættust í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. Þá unnu lærisveinar Rúnar Sigtryggssonar sömuleiðis sigur.
Fyrir leikinn í dag voru Gummersbach og Bergischer jöfn að stigum í 8. og 9. sæti deildarinnar og því var búist við fjörugum leik. Heimamenn í Gummerbach voru með yfirhöndina lengst af og leiddu 20-15 í hálfleik. Þeir héldu forystunni lengi vel en undir lokin náði lið Bergischer að minnka muninn í eitt mark. Nær komust þeir ekki og Elliði Snær gulltryggði sigur Gummersbach þegar hann kom liðinu í 35-32 þegar tæplega ein og hálf mínúta var eftir. Hann bætti síðan við einu marki í viðbót skömmu síðar en það var sjötta mark Elliða Snæs í leiknum sem nýtti öll sín skot af línunni. Lokatölur í leiknum 37-34 og Gummersbach tókst því að komast upp fyrir Bergischer í 8. sæti deildarinnar en liðin voru eins og áður sagði jöfn að stigum fyrir leikinn. Arnór Þór Gunnarsson skoraði eitt mark í leiknum í dag, það var síðasta mark leiksins sem kom úr víti eftir að leiktíminn var runninn út. Lærisveinar Rúnars Sigtryggssonar í Leipzig unnu öruggan sigur á Wetzlar á heimavelli sínum í dag. Leipzig hafði yfirhöndina allan leikinn og vann að lokum 38-29 sigur. Viggó Kristjánsson lék ekki með Leipzig í dag en hann er frá vegna meiðsla. Leipzig er í tólfta sæti deildarinnar eftir sigurinn í dag.
Þýski handboltinn Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Man. City verður meistari Sport „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Körfubolti Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Enski boltinn Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Serbía - Ísland | Mæta Jokic í gini úlfsins Körfubolti Fleiri fréttir Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 31-33 | Þjóðverjar áttu alltaf svar Fylgist stoltur með litla bróður á EM: „Verið draumur hans í mjög langan tíma“ Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Viktor Gísli framlengir við Barcelona Sjá meira