Veiðimenn eru orðnir mjög spenntir fyrir laxveiðisumrinu enda er ekki annað að sjá en að árnar verði í góðu vatni, í það minnsta inní júlí því apríl og maí hafa sjaldan verið jafn blautir og vatnsstaðan er góð. Það er nokkur hópur sem bíður gjarnan með að bóka leyfi fram á síðasta dag og Veiðivísir hefur aðeins verið að skoða hvað er í boði hjá hinum og þessum söluaðilum veiðileyfa. Einn af stærstu söluaðilum veiðileyfa á landinu er vefurinn www.veida.is en við renndum aðeins yfir lausa daga í laxveiði fyrir júní.
Á vefnum hjá þeim er meðal annars hægt að finna lausa daga í Brennunni í júní en það er klárlega frábær tími á þessu svæði en þetta er vesturbakkinn í Hvítá í Borgarfirði þar sem Grímsá kemur út í hana. Sama má segja um hinn bakkann þar sem veiðisvæðið Straumar liggur en meðfram þeim bakka gengur laxinn sem ætlar upp í Norðurá.
Það er líka laust í Sogið í Bíldsfell og Alviðru, laust holl í Hallá og Blöndu I og Blöndu IV. Það eru lausar stangir í Hvítá við Skálholt en þar má veiða á spún, maðk og flugu.