Sjáðu þegar Patrik sleit krossbandið og var refsað Sindri Sverrisson skrifar 10. maí 2023 16:30 Patrik Johannesen spilar ekki meira á þessari leiktíð eftir að hafa slitið krossband í hné. Vísir/Hulda Margrét Annað tímabilið í röð hefur Breiðablik misst út sóknarmann vegna krossbandsslita í hné og ljóst er að færeyski landsliðsmaðurinn Patrik Johannesen spilar ekki meira í Bestu deildinni í sumar.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, staðfesti við Fótbolta.net í dag að Patrik væri með slitið krossband. Patrik meiddist í leik gegn Stjörnunni á dögunum eftir að hafa reynt að ná boltanum af Eggerti Aroni Guðmundssyni. Patrik var raunar dæmdur brotlegur og fékk í refsingarskyni að líta gula spjaldið á meðan hann var studdur af velli. Atvikið var skoðað í Stúkunni í síðustu viku en þá var ekki orðið ljóst hve alvarleg meiðslin eru. Klippa: Patrik sleit krossband í hné Ljóst er að um mikið áfall er að ræða fyrir Blika en Patrik var keyptur frá Keflavík í vetur, eftir að hafa skorað tólf mörk í 22 leikjum í Bestu deildinni í fyrra. Þessi 27 ára gamli leikmaður var í byrjunarliði Færeyja í leik gegn Moldóvu í undankeppni EM í mars. Fyrir tímabilið í fyrra fengu Blikar framherjann Pétur Theodór Árnason frá Gróttu og Venesúelabúann Juan Camilo Pérez, og höfðu þeir báðir slitið krossband í hné í febrúar, áður en tímabilið hófst. Það kom þó ekki í veg fyrir að Blikar næðu að landa Íslandsmeistaratitlinum.
Breiðablik Besta deild karla Mest lesið Týnda treyjan var ekkert týnd heldur í einkasafni Madonnu Fótbolti „Sárt að kveðja gegn eigin vilja“ Fótbolti Liverpool og Man. Utd kvarta yfir hryllingi frá Grok Enski boltinn Ómar á fæðingardeild en Snorri valdi sinn sterkasta hóp Handbolti Sagðir drepa hunda í stórum stíl fyrir HM í fótbolta Fótbolti Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Enski boltinn Eru að borga Messi tíu milljarða á ári Fótbolti Svona var fyrsti fundur Snorra eftir EM Handbolti Skaut fast til baka á Xavi: „Sömu leikmenn eru núna að vinna“ Fótbolti Segir einn mann hafa stöðvað heimkomu Messi Fótbolti Fleiri fréttir Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Valsarar skoruðu fjögur og Njarðvíkingar enn ósigraðir Stjarnan á toppinn með sigurmarki Samúels Kára Sjá meira