Menning

Óperu­stjarnan Grace Bumbry er látin

Atli Ísleifsson skrifar
Grace Bumbry á sviði árið 2004.
Grace Bumbry á sviði árið 2004. Getty

Bandaríska óperusöngkonan Grace Bumbry er látin, 86 ára að aldri. Bumbry þykir eitt stærsta nafnið í heimi óperunnar og var ein þeirra sem ruddi brautina fyrir svarta í heimi óperutónlistar.

Erlendir fjölmiðlar segja Bumbry hafa látist í austurrísku höfuðborginni Vín á sunnudag.

Bumbry sló í gegn á alþjóðavettvangi þegar hún fór með hlutverk Amneris í uppsetningu Parísaróperunnar á Aidu eftir Verdi árið 1960. Hún var þá fyrsti svarti óperusöngvarinn sem steig á svið í uppsetningu hjá Parísaróperunni og ruddi þar með brautina fyrir aðra svarta óperusöngvara.

Bumbry gat bæði sungið sem sópran og messósópran.

Undur lok starfsferilsins fór hún með hlutverk greifynjunnar í uppsetningu Vínaróperunnar á Spaðadrottningunni eftir Tsjaíkovskí.

Metropolitan-óperan í New York minnist Bumbry á samfélagsmiðlum þar sem fram kemur að hún hafi sungið 2016 á fjölum óperunnar á tveggja áratuga tímabili.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.