Gísli Þorgeir öflugur þegar Magdeburg burstaði lærisveina Ólafs Smári Jökull Jónsson skrifar 3. maí 2023 19:18 Gísli Þorgeir og félagar eiga í harðri baráttu um þýska meistaratitilinn en liðið varð meistari á síðustu leiktíð. Vísir/Getty Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði sex mörk fyrir Magdeburg sem vann stórsigur á lærisveinum Ólafs Stefánssonar í Erlangen. Þá tapaði Íslendingaliðið Gummersbach naumlega gegn Hannover-Burgdorf.
Magdeburg er í harðri baráttu um þýska meistaratitilinn og þurfti nauðsynlega á tveimur stigum að halda í þeirri baráttu. Lið Erlangen er hins vegar um miðja deild og hefur að litlu að keppa. Enda kom það í ljós fljótt hvort liðið var tilbúnara í slaginn. Magdeburg náði fljótlega góðri forystu og leiddi 18-10 í hálfleik. Þeir unnu að lokum fimmtán marka sigur, lokatölur 38-23. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði sex mörk fyrir Magdeburg og gaf fimm stoðsendingar. Liðið er nú jafnt Kiel að stigum sem á leik til góða en Kiel vann 31-27 útisigur á Rhein Neckar Löwen í kvöld. Ýmir Örn Gíslason var í liði Löwen og spilaði í vörninni en komst ekki á blað. Íslendingaliðið Gummersbach mátti sætta sig við eins marks tap þegar liðið heimsótti Hannover-Burgdorf. Elliði Snær Viðarsson skoraði fimm mörk úr sjö skotum fyrir gestina og Hákon Daði Styrmisson eitt í 28-27 sigri Hannover-Burgdorf. Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf sem situr í 6. sæti úrvalsdeildarinnar eftir sigurinn. Gummersbach, sem Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar, er í ellefta sæti deildarinnar.
Þýski handboltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hlaut heilahristing og er enn með hausverk en aganefnd gaf grænt ljós Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Sjá meira