Blær hefur trú á því að strákarnir komist í úrslit og þá ætlar hann að reyna vera klár Stefán Árni Pálsson skrifar 17. apríl 2023 20:01 Blær meiddist mjög illa gegn Fram í gær en útlitið er ekki eins slæmt og á horfðist. Vísir/bjarni Blær Hinriksson meiddist illa í leik gegn Fram í gær og margir töldu að tímabilinu væri lokið hjá miðjumanninum. Hann gæti nú mögulega snúið aftur ef Afturelding kemst alla leið í úrslitaeinvígið.
Blær hefur verið einn besti leikmaður Aftureldingar í vetur en hann missteig sig mjög illa í leiknum gegn Fram í gær. Afturelding vann leikinn eftir framlengingu 33-30 og er 1-0 yfir í einvíginu. Örnólfur Valdimarsson bæklunarskurðlæknir skoðaði Blæ í dag og fréttastofa hitti leikmanninn þegar hann gekk út úr þeirri skoðun. „Örnólfur skoðaði þetta vel og ég fór líka í myndatöku í gær og það sást ekkert brot sem eru mjög jákvæðar fréttir en þetta eru einhver sködduð liðbönd, einhver rifin liðbönd og mar sem eru betri fréttir en á horfðist,“ segir Blær og heldur áfram. „Maður var bara að hoppa upp og lendir síðan mjög skringilega á ökklanum. Það myndaðist strax mikill þrýstingur og miklir áverkar en svona er þetta bara.“ Ætlaði að koma aftur út í seinni hálfleikinn Blær segir að sársaukinn hafi verið gríðarlegur en hann ætlaði sér samt sem áður að reyna fara aftur út í leikinn eftir slysið. „Þetta var frekar vont.“ Blær missti sjálfur af síðari hálfleiknum í gær og sá ekki liðið vinna leikinn. „Ég spurði bara þjálfarann hvað ég gæti gert til að klára leikinn. Hann taldi það ekki rétt og því var frekar ákveðið að kalla til sjúkrabíl, bólgan var það mikil.“ Hann vill ekki meina að tímabilinu sé lokið hjá sér. „Ég ætla ekki að útiloka neitt. Ef við komumst alla leið þá gæti ég kannski náð lokaleikjunum. Við krossum bara fingur og sjáum til.“
Olís-deild karla Handbolti Afturelding Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Sport „Hann sagði já takk“ Fótbolti Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira