Enski boltinn

Brig­hton og Brent­ford í bullandi bar­áttu um Evrópu­sæti

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Ivan Toney skoraði og lagði upp í kvöld.
Ivan Toney skoraði og lagði upp í kvöld. EPA-EFE/Tim Keeton

Brighton & Hove Albion og Brentford unnu leiki kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. 

Solly March tryggði Brighton 1-0 sigur á Crystal Palace með marki á tíundu mínútu eftir sendingu Kaoru Mitoma.

Ivan Toney kom Brentford yfir í fyrri hálfleik þegar liðið heimsótti botnlið Southampton. Toney lagði svo upp á Yoane Wissa sem gulltryggði 2-0 sigur Brentford í uppbótartíma.

Brighton er nú með 42 stig í 7. sæti, aðeins tveimur minna en Newcastle United sem situr í 5. sætinu. Brentford er í 8. sæti með 41 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×