ÍBV, topplið Olís-deildar kvenna, mætir Val í úrslitaleik Powerade-bikarsins í handbolta kvenna en Eyjakonur lögðu Selfoss að velli í undanúrslitum keppninnar í Laugardalshöll í kvöld. Lokatölur í leiknum urðu 29-26 ÍBV í vil.
Jafnræði var með liðunum fram í miðbik fyrri hálfleiks þegar leikmenn ÍBV fóru að sigla fram úr. Þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik var ÍBV 16-11 yfir.
Eykakonur sýndu svo mátt sinn og megin í upphafi seinni hálfleiks og náðu fljótlega níu marka forskoti og var munurinn um það bil næstu mínútur leiksins. Selfyssingar bitu svo frá sér undir lok leiksins og niðurstaðan varð þriggja marka sigur ÍBV.
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir reyndist uppeldisfélagi sínu óþægur ljár í þúfu en hún skoraði sjö mörk í þessum leik, þar af þrjú úr vítaköstum. Birna Berg Haraldsdóttir, Sunna Jónsdóttir og Elísa Elíasdóttir skoruðu svo fjögur mörk hver fyrir Eyjaliðið.

Katla María Magnúsdóttir var atkvæðamest hjá Selfossi með níu mörk, þar af tvö af vítalínunni. Arna Kristín Einarsdóttir kom næst með fimm mörk og þar á eftir var Rakel Guðjónsdóttir með fjögur.
Markverðir beggja liða vörðu vel en Marta Wawrzynkowska varði 14 skot í marki ÍBV og kollegi hennar Cornelia Hermannsson 15 skot hjá Selfossi.


Það verða topplið Olís-deildarinnar ÍBV og Valur sem mætast í úrslitaleik Powerade-bikarsins á laugardaginn kemur en Hlíðarendaliðið bar sigurorð af Haukum í hinum undanúrslitaleiknum fyrr í dag.




