„Landsliðsþjálfari Íslands í handbolta á að vera í fullu starfi“ Smári Jökull Jónsson skrifar 22. febrúar 2023 21:00 Gaupi vill að næsti landsliðsþjálfari Íslands verði ráðinn í fullt starf. Vísir/Arnar Guðmundur Guðmundsson hætti sem landsliðsþjálfari Íslands í handknattleik í gær. Guðjón Guðmundsson var í viðtali í Reykjavík síðdegis í dag þar sem hann fór yfir stöðuna sem upp er komin.
Það kom mörgum í opna skjöldu í gær þegar tilkynnt var að Guðmundur Guðmundsson væri hættur sem landsliðsþjálfari karlalandsliðsins í handknattleik. Síðustu leikir landsliðsins undir stjórn Guðmundar voru á heimsmeistaramótinu í janúar þar sem liðið stóð ekki undir væntingum og endaði í 12. sæti. „Þetta er bara sameiginleg niðurstaða okkar. Við áttum spjall saman og eftir að hafa farið yfir þetta þá var þetta bara sameiginleg niðurstaða okkar,“ sagði Guðmundur B. Ólafsson, formaður handknattleikssambands Íslands, um þá ákvörðun að Guðmundur myndi ekki halda áfram þjálfun landsliðsins. Íþróttafréttamaðurinn Guðjón Guðmundsson, eða Gaupi eins og hann er oftast kallaður, var í viðtali í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag þar sem hann fór yfir stöðuna sem upp er komin. Guðjón vill að landsliðþjálfari Íslands verði ráðinn í fullt starf. „Þetta kom mér á óvart, tímasetningin fannst mér undarleg líka því það er stutt í næstu leiki. Það eru tveir leikir gegn Tékkum í undankeppni Evrópumótsins þann 8. og 12.mars og síðan tveir leikir í apríl gegn Ísrael og Eistlandi. Það kom mér sannarlega á óvart að hans afsögn hafi verið tilkynnt í gær og tímasetningin undarleg að því leytinu til að það eru aðeins tvær vikur í næsta leik,“ sagði Guðjón um brotthvarf Guðmundar. Guðjón segir erfitt að rýna í ástæðurnar fyrir því að Guðmundur sé nú hættur. „Menn urðu fyrir miklum vonbrigðum með árangurinn á síðasta heimsmeistaramóti þar sem átján mínútna kafli gegn Ungverjalandi gerir útaf við okkur. Mér finnst full mikið í lagt að skella skuldinni á þjálfarann alfarið, þar bera leikmenn líka ábyrgð sem klikkuðu á dauðafærum á ögurstundu og við getum endalaust haldið svona áfram.“ „Hann auðvitað bar ábyrgð á liðinu og það voru gríðarlega miklar væntingar um góðan árangur á þessu móti. Ég held að árangurinn hafi gert það að verkum að menn hafi lagt saman tvo og tvo og hugsað með sér að þetta væri líklega komið gott í bili hjá Guðmundi sem er miður því Guðmundur er einn albesti handknattleiksþjálfari heims.“ „Þrír, fjórir eða fimm menn sem eru efstir á blaði“ Guðjón segir að ekki liggi á að ráða nýjan þjálfara strax og að menn þurfi að hugsa sig vel um og vanda til verka. „Ég hef verið þeirrar skoðunar lengi að landsliðsþjálfari Íslands í handbolta á að vera maður í fullu starfi, ekki í hlutastarfi eins og Guðmundur var. Ég held að það verði að ráða mann í fullt starf, mann sem getur fylgst með hérna heima þeim mönnum sem eru að koma. Hann getur stutt við bakið á unglingalandsliðunum sem skiptir verulegu máli.“ „Ég held að á árunum 2024-2028 þá séum við að fá inn gríðarlega öfluga leikmenn sem gætu komist á heimsmælikvarða. Þá held ég að liðið muni hrökkva í gang og þar af leiðandi er mjög mikilvægt að maðurinn sem tekur við þessu sé í fullu starfi, hann geri ekkert annað en að vera landsliðsþjálfari Íslands.“ „Ekki veit ég hvað Handknattleikssambandið ætlar að gera, þeir eiga völina en þeir eiga líka kvölina.“ Guðjón var nokkuð tregur til að nefna kandídata í starfið en Snorri Steinn Guðjónsson, sonur Guðjóns, er einn þeirra sem einna helst hefur verið orðaður við starfið. „Auðvitað eru nokkrir sem koma til greina, við eigum fullt af góðum þjálfurum og ég ætla nú ekki að gerast svo djarfur að nefna einhver uppáhalds nöfn. Þetta eru kannski þrír, fjórir eða fimm menn sem eru efstir á blaði.“ Hverjir eru það? Dagur (Sigurðsson)? „Já, ég myndi nú halda Dagur.“ Snorri Steinn? „Já, líklega er hann þarna á blaði. Patrekur Jóhannesson, ég nefni hann til sögunnar. Erlingur Richardsson þjálfari ÍBV og þjálfari hollenska landsliðsins um tíma. Góður þjálfari sem hefur þjálfað erlendis, frábært eintak Erlingur. Ef ég hefni bara þessa fjóra þá held ég að þessir menn komi allir vel til greina sem landsliðþjálfarar Íslands.“ „Síðan þarf HSÍ bara að fara yfir þetta og talar væntanlega við þessa menn alla. Svo vitum við ekki hvort þessir menn vilji taka við landsliðinu,“ sagði Guðjón og bætti við að hann teldi starfið frekar vanþakklátt. „Um leið og þú ert kominn í þetta starf þá ertu búinn að opna þig fyrir þjóðinni og ert með þjóðina á bakinu. Þú ert með 300.000 landsliðsþjálfara ofan í koki alla daga þannig að það er að ýmsu að hyggja.“ Allt viðtalið við Gaupa í Reykjavík síðsdegis má heyra í spilaranum hér fyrir neðan en hann kemur einnig inn á þá staðreynd að Gunnar Magnússon og Ágúst Jóhannsson munu stýra landsliðinu í leikjunum sem framundan eru.
Landslið karla í handbolta Reykjavík síðdegis Mest lesið Olnbogi Ægis brotnaði Körfubolti Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Fótbolti Ekitike sleit hásin Fótbolti Rory McIlroy gerði dóttur sína vandræðalega Golf „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ Handbolti „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Fótbolti „Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ Körfubolti Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Fótbolti „Brugðumst vel við í krefjandi aðstæðum“ Körfubolti Fleiri fréttir Langur samningur og krafan er skýr „Ætla að klára þetta með stæl og vonandi landa þeim stóra“ „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ „Auðvitað bara dugar þetta ekki“ „Undirbúningur, hjartað og baráttan“ „Ekki til betri skemmtun en þetta“ Uppgjörið: FH - Haukar 27-23 | FH-ingar einum sigri frá úrslitum Guðjón Valur missir besta leikmann liðsins í slæm meiðsli „Skemmtilegustu leikirnir að spila“ Fengu tveggja ára bann fyrir að svindla á þolprófi Snorri semur til 2032 Svona kynnti HSÍ nýja samninginn við Snorra og Arnór Díana fer aftur til Fram Sópurinn aftur inn í skáp hjá bæði Birgi Steini og Einari Braga Uppgjörið: Valur - KA 38-34| Valsmenn sópuðu KA í sumarfrí Bjarki klikkaði ekki á skoti í toppslagnum Með gæsahúð um allan líkamann í kveðjuleiknum Snorri og Arnór eftirsóttir: Áhugi erlendis frá en HSÍ enn í forgangi Stelpurnar okkar í neðsta styrkleikaflokki fyrir EM Ómar með fjórtán og Gísli skoraði alltaf Uppgjörið: Ísland - Portúgal 32-24| Ísland er á leiðinni á EM EM-sæti í húfi: „Mjög spennt að sjá hvar við stöndum núna“ Rekinn án skýringa og ætlar í mál Úrslitaleikur um EM-sæti: „Á ekki von á því að það komi fyrir aftur“ Ótrúlegt flug undir stjórn Guðjóns og Haukur bjó til helming marka Löwen Stjarnan einum sigri frá því að halda sér uppi Margt sem þarf að laga „Þetta er ákveðin skák“ Haukar - FH 27-22 | Haukar jöfnuðu Hafnarfjarðarslaginn Björgvins Halldórssonar minnst með einnar mínútu þögn Sjá meira