Fyrr í dag tilkynnti Íslandsbanki um hækkun sinna vaxta.
Fram kemur í tilkynningu á vef Arion banka að breytilegir vextir þegar veittra lána hækki þrjátíu dögum eftir tilkynningu nema yfirdráttarlán og innlán sem taki breytingum samdægurs. Öll ný útlán munu bera nýju vextina.
Breytingarnar eru eftirfarandi:
Óverðtryggð íbúðalán
- Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,50 prósentustig og verða 8,34%
- Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir eru óbreyttir og eru áfram 8,50%
Kjörvextir
- Almennir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,50 prósentustig.
Yfirdráttur og greiðsludreifing kreditkorta
- Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga hækka um 0,50 prósentustig
Bílalán
- Kjörvextir bílalána hækka um 0,50 prósentustig.
Innlán
- Breytilegir óverðtryggðir vextir sparnaðarreikninga hækka um allt að 0,70 prósentustig. Vextir veltureikninga hækka um 0,10 prósentustig. Vextir á Íbúðasparnaði hækka um 0,5 prósentustig og verða 7%.
Í tilkynningu á vef Arion segir að Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, meðal annars útlánaáhættu.
„Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.
Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.“