Hafa samþykkt verkfallsboðun Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 30. janúar 2023 22:04 Samninganefnd Eflingar. Efling Starfsmenn Íslandshótela hafa samþykkt boðun um verkfallsaðgerðir. Rafræn atkvæðagreiðsla sem hófst á hádegi síðastliðinn þriðjudag lauk nú fyrir stuttu. Verkfall hefst í næstu viku, hafi samningar ekki náðst.
Uppfært kl. 22.16 Í fréttatilkynningu sem Samninganefnd Eflingar sendi frá sér rétt í þessu kemur fram að nefndin fagni hugrekki verkafólks á Íslandshótelum og samþykki næstu lotu verkfallsboðana: Eflingarfélagar hjá Íslandshótelum hafa með afgerandi meirihluta samþykkt ótímabundna vinnustöðvun á öllum hótelum keðjunnar í Reykjavík. Var boðunin samþykkt með 124 atkvæðum gegn 58 mótatkvæðum og 7 sem óskuðu að taka ekki afstöðu. Af þeim sem greiddu atkvæði voru því 65 prósent sem samþykktu boðunina. Samtals kusu 189 af þeim 287 sem voru á kjörskrá og var kjörsókn því 66 prósent prósent sem er mun meira en sést hefur í verkfallskosningum félagsins á síðustu árum. Hefst vinnustöðvun að óbreyttu þriðjudaginn 7. febrúar. Stjórnendur Íslandshótela beittu starfsfólk miklum þrýstingi og ólögmætum hótunum um tekjumissi tækju þau afstöðu með verkfalli. Er það skýrt brot á ákvæðum laga um stéttarfélög og vinnudeilur. Var allt starfsfólk skikkað á sérstaka fundi þar sem stjórnendur ræddu um kjaradeilu Eflingar við SA á villandi og einhliða hátt, og komu hótunum sínum í þá veru óspart á framfæri. Bárust félaginu margar kvartanir frá félagsfólki vegna þessa. Ríkissáttasemjari samþykkti sérstaka miðlunartillögu sem tímasett var til að koma í veg fyrir að félagsfólk Eflingar hjá Íslandshótelum fengi að nýta sér rétt sinn til verkfalls. Hann endurtók jafnframt hótanir atvinnurekenda um tekjumissi. Tveir ráðherrar Vinstri grænna í ríkisstjórn, Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, vissu af miðlunartillögu ríkissáttasemjara áður en hún var kynnt samninganefnd Eflingar. Ráðherrarnir stigu fram opinberlega til stuðnings við miðlunartillöguna þrátt fyrir háværa gagnrýni allra heildarsamtaka launafólks á hana. Verkfallsboðunin tekur til starfsstöðva Íslandshótela á félagssvæði Eflingar. Er þar um að ræða félagsfólk sem sinnir þrifum á herbergjum og í sameiginlegum rýmum, störfum í eldhúsi, við framreiðslu veitinga, þvott og fleira. SA áréttir fullan stuðning við Íslandshótel Hótel Íslandshótela á höfuðborgarsvæðinu eru Hótel Saga nýtt hótel í Lækjargötu, Grand Hótel við Kringlumýrarbraut, Hótel Centrum á horni Túngötu og Aðalstrætis, Fosshótel við Þórunnartún, Fosshótel við Barónsstíg, Fosshótel Lind við Rauðarárstíg og hótel Rauðará við sömu götu. Í síðasta tilboði til SA krafðist samninganefnd Eflingar þess að hótelstörf yrðu hækkuð um launaflokk. Töfluhækkun tilboðs Eflingar myndi skila almennum hótelstarfsmanni með eins árs starfsaldur rúmlega 55 þúsund króna hækkun grunnlauna, til viðbótar við framfærsluuppbót að upphæð 15 þúsund á mánuði vegna hás framfærslukostnaðar á höfuðborgarsvæðinu. Samninganefnd Eflingar samþykkti verkfallsboðunina þann 21.janúar síðastliðinn eftir árangurlausar samningaviðræður við Samtök atvinnulífsins. Þrátt fyrir miðlunartillögu í deilu félagsins við Samtök atvinnulífsins sem ríkissáttasemjari lagði fram ákvað Efling ætlar að halda atkvæðagreiðslunni til streitu gg krefjast þess að miðlunartillagan yrði felld úr gildi. Efling lagði fram stjórnsýslukæru vegna tillögunnar til félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. Líkt og Vísir hefur greint frá hefur SA áréttað fullan stuðning samtakanna við Íslandshótel en sá stuðningur felur meðal annars í sér heimild til að bæta Íslandshótelum allt tjón sem af vinnustöðvun hlýst, verði af verkfalli, úr svokölluðum vinnudeilusjóði samtakanna.
Ólga innan Eflingar Kjaramál Kjaraviðræður 2022-23 Hótel á Íslandi Tengdar fréttir Hafa skilað inn stjórnsýslukæru vegna ríkissáttasemjara Stéttarfélagið Efling hefur skilað stjórnsýslukæru til ráðuneytis vinnumarkaðsmála vegna framferðis ríkissáttasemjara í kjaradeilu stéttarfélagsins og Samtaka atvinnulífsins. Formaður Eflingar segir það ekki koma á óvart að hafa ekki fengið fund með ráðherra í morgun. 30. janúar 2023 14:03 Efling þarf að skila greinargerð á föstudaginn Héraðsdómur Reykjavíkur ákvað í morgun að Efling fengi til föstudags til að skila greinargerð í deilu félagsins við ríkissáttasemjara um hvort félaginu sé skylt að afhenda félagatal sitt vegna miðlunartillögu sáttasemjara. Fyrirtaka í málinu fór fram í héraðsdómi eftir hádegið. 30. janúar 2023 13:39 Takast á um félagatalið í dómsal í dag Krafa ríkissáttasemjara um að Efling afhendi félagatala sitt, svo hægt sé að greiða atkvæði um miðlunartillögu, verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur nú eftir hádegi. Óvíst er hvenær niðurstaða liggur fyrir en óskað hefur verið eftir flýtimeðferð. 30. janúar 2023 12:00 Atkvæðagreiðslan skrumskæling á lýðræði Forysta Eflingar mun í dag heimsækja félagsmenn sína, sem munu leggja niður störf verði verkfallsaðgerðir samþykktar, og hvetja þá til að hafna miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Þingmaður Samfylkingarinnar segir tíma til kominn að Alþingi endurskoði reglur um miðlunartillgöru ríkissáttasemjara. 28. janúar 2023 13:22 Atkvæðagreiðsla um miðlunartillögu í algjöru uppnámi Ríkissáttasemjari segir engan lagalegan vafa leika á um skýra heimild hans til að leggja fram miðlunartillögu og aðgang hans að kjörskrá Eflingar. Efling ætlar ekki að afhenda Advania fyrir hönd ríkissáttasemjara félagatal sitt svo hægt verði að framkvæma atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu hans. 27. janúar 2023 12:21 Augljóst að verið sé að hræða starfsfólkið Formaður Eflingar segir reynt að hræða starfsfólk Íslandshótela frá því að fara í verkfall sem hún hafi fulla trú á að félagsmenn samþykki. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að afturvirkar launahækkanir standi starfsfólki Eflingar til boða þar til verkfall skelli á. 25. janúar 2023 18:11 Íslandshótel fá allt tjón bætt komi til verkfalls Samtök atvinnulífsins munu bæta Íslandshótelum allt það tjón sem hlýst af mögulegu verkfalli Eflingarstarfsmanna. 25. janúar 2023 07:18 Mest lesið Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Innlent Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn Innlent Stungan leiddi til skurðar Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Fleiri fréttir Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Sjá meira
Hafa skilað inn stjórnsýslukæru vegna ríkissáttasemjara Stéttarfélagið Efling hefur skilað stjórnsýslukæru til ráðuneytis vinnumarkaðsmála vegna framferðis ríkissáttasemjara í kjaradeilu stéttarfélagsins og Samtaka atvinnulífsins. Formaður Eflingar segir það ekki koma á óvart að hafa ekki fengið fund með ráðherra í morgun. 30. janúar 2023 14:03
Efling þarf að skila greinargerð á föstudaginn Héraðsdómur Reykjavíkur ákvað í morgun að Efling fengi til föstudags til að skila greinargerð í deilu félagsins við ríkissáttasemjara um hvort félaginu sé skylt að afhenda félagatal sitt vegna miðlunartillögu sáttasemjara. Fyrirtaka í málinu fór fram í héraðsdómi eftir hádegið. 30. janúar 2023 13:39
Takast á um félagatalið í dómsal í dag Krafa ríkissáttasemjara um að Efling afhendi félagatala sitt, svo hægt sé að greiða atkvæði um miðlunartillögu, verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur nú eftir hádegi. Óvíst er hvenær niðurstaða liggur fyrir en óskað hefur verið eftir flýtimeðferð. 30. janúar 2023 12:00
Atkvæðagreiðslan skrumskæling á lýðræði Forysta Eflingar mun í dag heimsækja félagsmenn sína, sem munu leggja niður störf verði verkfallsaðgerðir samþykktar, og hvetja þá til að hafna miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Þingmaður Samfylkingarinnar segir tíma til kominn að Alþingi endurskoði reglur um miðlunartillgöru ríkissáttasemjara. 28. janúar 2023 13:22
Atkvæðagreiðsla um miðlunartillögu í algjöru uppnámi Ríkissáttasemjari segir engan lagalegan vafa leika á um skýra heimild hans til að leggja fram miðlunartillögu og aðgang hans að kjörskrá Eflingar. Efling ætlar ekki að afhenda Advania fyrir hönd ríkissáttasemjara félagatal sitt svo hægt verði að framkvæma atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu hans. 27. janúar 2023 12:21
Augljóst að verið sé að hræða starfsfólkið Formaður Eflingar segir reynt að hræða starfsfólk Íslandshótela frá því að fara í verkfall sem hún hafi fulla trú á að félagsmenn samþykki. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að afturvirkar launahækkanir standi starfsfólki Eflingar til boða þar til verkfall skelli á. 25. janúar 2023 18:11
Íslandshótel fá allt tjón bætt komi til verkfalls Samtök atvinnulífsins munu bæta Íslandshótelum allt það tjón sem hlýst af mögulegu verkfalli Eflingarstarfsmanna. 25. janúar 2023 07:18