Tónlist

Fékk beinan stuðning frá Spotify

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Magnús Gunnarsson er að gera góða hluti í tónlistinni og er búsettur í Los Angeles.
Magnús Gunnarsson er að gera góða hluti í tónlistinni og er búsettur í Los Angeles. Aðsend

Rapparinn Emmsjé Gauti trónir á toppi Íslenska listans á FM aðra vikuna í röð með ástarlagið Klisja. Í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert var svo tónlistarmaðurinn Magnús Gunn mættur með nýjasta lagið sitt „I’ll Be Alright“ en lagið lenti inn á vinsælum lagalista hjá streymisveitunni Spotify.

Magnús ræddi við Íslenska listann um lagið og það sem er fram undan.

„Lagið er svokölluð sjálf-útgáfa en það fékk beinan stuðning frá Spotify og var bætt við á lagalistann Tropical House, sem er með yfir 2,1 milljón fylgjendur. Mér finnst lagið auðvelt á eyrað með fallegum melódíum og texta sem mér þykir vænt um,“ segir Magnús en hann samdi og pródúseraði lagið að mestu árið 2021.

Klippa: Magnús Gunn - I'll Be Alright

„ Svo tók ég mér góðan tíma í að finna því réttan farveg, en ég skoðaði upprunalega að gefa það út í gegnum svokallað indie plötufyrirtæki. Ég ákvað síðan að gefa það út sjálfur, sem ég sé ekki eftir í dag þar sem laginu hefur vegnað nokkuð vel hingað til.“

Magnús var með yfir tíu milljón streymi árið 2022 og vonast til að gefa út meira af tónlist á árinu. Þó segist hann hafa breytt aðeins hugarfarinu varðandi það hvernig hann vinnur og gefur út.

„Ég reyni núna að gefa mér góðan tíma í hvert verkefni, passa að ég hafi gaman að því og að útgáfan fái að njóta sín, frekar en að gera þetta í flýti og ætla að gefa út ákveðið mörg lög á ákveðnum tíma. Ég hef líka reynt að passa að hvert lag sé með smá game plan áður en það er gefið út.

Mér finnst ég hafa verið mjög heppinn undanfarið ár og ég hlakka mikið til að byggja ofan á það. Mér hefur vegnað vel í þessum tónflokki, Tropical House, eða Chill House eins og það er stundum kallað. Ég er forvitinn að sjá hvernig framhaldið verður.“

Umslagið fyrir lagið I´ll Be Alright.Aðsend

Magnús er með um 400 þúsund mánaðarlega hlustendur á Spotify um þessar mundir sem Magnus Gunn en hann er einnig með tónlistarverkefnið MagFi sem hefur gengið vel.

Íslenski listinn er fluttur alla laugardaga frá klukkan 14:00-16:00 á FM957.

Lög íslenska listans:

Íslenski listinn á Spotify:


Tengdar fréttir

Adele drekkur vín og þykir líkleg til vinsælda

Breska stórstjarnan og söngkonan Adele var kynnt inn sem líkleg til vinsælda á Íslenska listanum á FM í dag með lagið I Drink Wine. Lagið er að finna á plötunni 30 sem Adele sendi frá sér í fyrra.

Flutti til Los Angeles til að setja tónlistina í fyrsta sæti

Tónlistarmaðurinn Magnús Gunnarsson er búsettur í Los Angeles. Á streymisveitunni Spotify er hann með um 400 þúsund mánaðarlega hlustendur ​og hefur fylgst með tölunum aukast að undanförnu. Blaðamaður hafði samband við Magnús vestur um haf og tók púlsinn á honum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.