Opna á fjölgun kjarnorkuvera í Svíþjóð Atli Ísleifsson skrifar 11. janúar 2023 11:26 Ulf Kristersson tók við embætti forsætisráðherra Svíþjóðar í haust. AP Ríkisstjórn Svíþjóðar kynnti í morgun fyrirhugaðar breytingar á regluverki sem gætu leitt til bæði fjölgunar og stækkunar kjarnorkuvera í landinu.
Forsætisráðherrann Ulf Kristersson og umhverfis- og loftslagsmálaráðherrann Romina Pourmokhtari kynntu frumvarpið sem myndi fela í sér að ákvæði í sænskum lögum, sem kveður á um að einungis sé hægt að vera með tíu kjarnaofna í rekstri í landinu á hverjum tíma, yrði fellt úr gildi. Ákvæði um að einungis sé hægt að reka kjarnorkuver á þremur stöðum í landinu verður sömuleiðis fellt úr gildi. Kjarnorkuver eru nú rekin á þremur stöðum í Svíþjóð; Forsmark, norður af Stokkhólmi, Oskarshamn í Smálöndum og Ringhals, suður af Gautaborg. „Maður ætti að gera byggt fleiri kjarnaofna á fleiri stöðum en hingað til hefur verið hægt,“ sagði Kristersson á fréttamannafundinum í morgun. Orkumálin voru mikið í deiglunni í kosningabaráttunni í Svíþjóð í haust þar sem meðal annars var deilt um fýsileika þess að ráðast í gerð fleiri kjarnorkuvera og stækka þau sem fyrir eru. Hægriflokkarnir, sem saman mynduðu ríkisstjórn að loknum kosningum, töluðu allir fyrir slíkri nálgun, en Jafnaðarmannaflokkurinn snerist sömuleiðis á sveif með talsmönnum aukinnar kjarnorku mánuðina fyrir kosningar.
Svíþjóð Kjarnorka Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira