Tónlist

Forsprakki The Specials er látinn

Atli Ísleifsson skrifar
Terry Hall á tónleikum í Amsterdam síðasta sumar.
Terry Hall á tónleikum í Amsterdam síðasta sumar. Getty

Breski söngvarinn Terry Hall, forsprakki ska-sveitarinnar The Specials, er látinn, 63 ára að aldri.

Hall var þekktur fyrir ímynd sína sem afundinn og skarpur tónlistarmaður en sveitin naut talsverðra vinsælda á áttunda og níunda áratugnum með smellum á borð við Ghost Town, Gangsters og Too Much Too Young.

BBC segir frá því að Hall hafi sagt skilið við The Specials árið 1981 og stofnaði hann þá sveitina Fun Boy Three með þeim Neville Staples og Lynval Golding.

Í stuttri yfirlýsingu frá The Specials segir að Hall hafi andast eftir stutt veikindi. „Terry var yndislegur eiginmaður og faðir og einn blíðasti, fyndnasti og ein einlægasta sál sem til var,“ segir í yfirlýsingunni.

Hall fæddist árið 1959 og ólst upp í Coventry í Englandi. Þegar hann var tólf ára gamall var honum rænt af kennara sem fór með Hall til Frakklands þar sem kennarinn misnotaði hann kynferðislega í fjóra daga. 

Hall sagði í viðtali mörgum árum síðar að hann hafi glímt við þunglyndi æ síðan og að málið hafi leitt til þess að hann hætti í skóla fjórtán ára gamall og síðar orðið háður róandi lyfjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.