Kristján Einar var handtekinn á Malaga á Spáni í mars síðastliðnum eftir að hafa tekið þátt í „fyllerísslagsmálum, eins og gengur og gerist“, að eigin sögn. Hann segir að upphaflega hafi staðið til að hann yrði vistaður í fangelsi í sex ár, eftir að hafa fengið lélegum lögmanni úthlutað.
Óttar Kolbeinsson Proppé fréttamaður settist niður með Kristjáni Einari:
Fékk ekki að hringja símtal fyrr en eftir tíu daga
Kristján Einar segir að eftir að honum komið fyrir í fangelsinu hafi hann ekki fengið að hringja símtal fyrstu tíu dagana hið minnsta. Þegar hann hafi loksins fengið að hringja heim hafi hann einungis fengið fjörutíu sekúndur til þess. Eftir heilan mánuð fékk hann símasamning samþykktan og gat þá loksins hringt heim almennilega.
Hver er fyrsta manneskjan sem maður hringir í í svona aðstæðum?
„Er það ekki alltaf mamma? Er það ekki alltaf þangað sem maður leitar fyrst?“ svarar Kristján Einar.
„Þetta var éta eða vera étinn“
Kristján Einar segir að hann hafi þurft að „sanna sig“ snemma í fangelsinu til þess að verða ekki það sem hann kallar beitu.

„Eins og til dæmis á fyrsta deginum sest ég niður með matinn, þessar yndislegu kartöflur sem okkur var alltaf boðið upp á, þá kemur einhver Spánverji og reynir að fikta í þeim. Ég þurfti bara að breytast í skepnu, standa upp og rota hann. Þú þurftir bara að leggja mannlegu hliðina til hliðar,“ segir hann.
Þá segir Kristján Einar að ástandið hafi verið sérstaklega slæmt fyrst um sinn þar sem hann hafi verið settur í ranga álmu í fangelsinu. „Ég var bara með morðingjunum og nauðgurunum,“ segir hann.
Mölbrotið kerfi
Sem áður segir var Kristján Einar upphaflega dæmdur til sex ára fangelsisvistar en er nú laus aðeins átta mánuðum eftir handtöku.
Hann segir að til þess að losna hafi hann þurft að fá sér nýjan lögfræðing sem hafði aðstoðað tvo menn sem framið höfðu alvarlegt innbrot og ofbeldisglæpi að losna úr fangelsi eftir aðeins sex mánaða fangelsisvist.
„Ég fékk samband við þeirra lögfræðing og hann byrjaði að vinna í málinu. Til þess að komast áfram í svona málum þarftu að vera með það sem við köllum óhreinan lögfræðing, dirty lawyer, sem greiðir mútur. Málaga lawyer,“ segir hann.
Hann segir réttarkerfið á Spáni vera það brotnasta sem hann hafi upplifað, sér í lagi gagnvart útlendingum.
Þá segir Kristján Einar að enga aðstoð hafi verið að fá frá yfirvöldum hér á landi. „Við búum í 350 þúsund manna landi, einhvern veginn hélt ég að það væri meira haldið utan um sína ríkisborgara,“ segir hann.
„Ég tek bara einn dag í einu“
Kristján Einar segir erfitt sjá hver hans næstu skref verði, hann hafi einhver plön fyrir framtíðina en fyrst þurfi hann að vinna úr áfallinu sem fylgir upplifun hans úr fangelsinu.
„Eina sem ég veit er að ég kem út sem betri maður, eða ég ætla mér allavega. Nú tekur lífið bara við, áfram gakk,“ segir Kristján Einar að lokum.