„Jovan Kukobat skuldaði frammistöðu eftir síðasta leik“ Andri Már Eggertsson skrifar 21. nóvember 2022 21:50 Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar, á hliðarlínunni í leik kvöldsins Vísir/Diego Afturelding vann sannfærandi sjö marka sigur á Selfyssingum í 10. umferð Olís deildarinnar 38-31. Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar, var ánægður með hvernig hans lið svaraði jafnteflinu í síðustu umferð. „
Þetta var frábær liðssigur fyrir utan einhverjar tíu mínútur í fyrri hálfleik þar sem við misstum einbeitinguna. Eftir það fannst mér frammistaðan frábær og það stigu margir upp. Við vorum óánægðir með frammistöðuna í síðasta leik og við vildum svara fyrir það strax sem við gerðum,“ sagði Gunnar Magnússon eftir leik. Í stöðunni 13-13 tók Gunnar Magnússon leikhlé og eftir það gerði Afturelding sex mörk í röð og kláraði leikinn. „Ég tók leikhlé þar sem við vorum sjálfum okkur verstir á þessum tímapunkti. Ég vildi fá menn til að einbeita sér og fara aftur í leikplanið. Það var engin töfralausn í þessu leikhléi heldur fórum við aftur í okkur og vorum að fylgja okkar plani.“ Afturelding var fjórum mörkum yfir í hálfleik og Gunnar var ánægður með hvernig hans lið spilaði í seinni hálfleik. „Ég var ánægður með hvernig við komum inn í seinni hálfleik og byrjuðum af krafti fyrstu 10-15 mínúturnar og lokuðum leiknum. Jovan Kukobat skuldaði okkur frammistöðu eftir síðasta leik og hann kvittaði fyrir það í kvöld,“ sagði Gunnar Magnússon að lokum.
Afturelding Olís-deild karla Handbolti Mest lesið Rautt fyrir hártog og sami maður með tvö sjálfsmörk Enski boltinn Albert sneri aftur og skoraði í vítakeppninni Fótbolti „Föstu leikatriðin drápu leikinn“ Enski boltinn Mbappé klúðraði aftur víti og Real Madrid tapaði Fótbolti Tryggvi hrósaði aftur sigri á Ítalíu Körfubolti Hornspyrnur Arsenal gerðu gæfumuninn gegn United Enski boltinn Kolbrún: Ég var ekki að fara að tapa í dag Körfubolti Fyrsti sigur Villa í níu leikjum Enski boltinn Loksins vann City Enski boltinn Ófarir Magdeburg í Meistaradeildinni halda áfram Handbolti Fleiri fréttir Ófarir Magdeburg í Meistaradeildinni halda áfram Óðni héldu engin bönd í toppslagnum Bjarki Már með sex í hundraðasta leiknum fyrir Veszprém Hrútfirska hornakonan ein sú markahæsta og öruggasta á EM Stelpurnar hans Þóris þéna mun minna samtals en hlaupari Frammistaðan á EM skilaði stelpunum í efri styrkleikaflokk í fyrsta sinn Hrærð yfir viðbrögðum Þóris: „Fæ bara kökk í hálsinn“ Skýrsla Vals: Bölvaður Berlínarmúrinn „Fyrir mig var þetta gríðarlega erfitt“ Tárvot Andrea: „Ógeðslega sár en stolt“ Elín Rósa: Við náðum okkar helsta markmiði „Ákveðinn í að láta þennan leik ekki sitja í mér“ „Langar svolítið að setja punktinn aftan við þetta mót“ Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 19-30 | Heim af EM eftir kennslustund Svona eru milliriðlar EM: Þórir byrjar á Dönum Færeyjum skellt af herraþjóðinni og Holland vann með tuttugu Elísa veik og ekki með Tíu sinnum betri handboltaferð en aðrir hafa farið í „Við sjáum möguleika þarna“ „Þær eru búnar að taka nokkra krísufundina“ Ómar með þrjú slitin liðbönd: „Líklegast er HM ekki möguleiki“ Útilokar ekki að Ómar Ingi verði með á HM Þegar stelpurnar okkar unnu Þjóðverja Ómar Ingi ekki með á HM „Þýska liðið er allt önnur skepna“ „Förum léttar inn í þennan leik“ Leikdagur í Innsbruck: Hitum logsuðutækin Oft spurt hvernig sé að vinna með „fúla Íslendingnum“ Óánægður eftir brot á leikmanni Þóris: „Lífshættulegt“ „Þá rennur stressið af manni“ Sjá meira