Blóð tekið úr 4.141 hryssu á 90 starfsstöðvum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 16. nóvember 2022 08:15 Ísteka var sjálft með fjóra hryssnahópa í blóðnytjum á þremur stöðum, alls um 280 hryssur. Stjórnarráðið Tekið var blóð úr 4.141 hryssu til framleiðslu eCG/PMSG hórmónsins í ár en heildarfjöldi blóðtökuhryssna í stóðum bænda var 4.779. Tekið var blóð í um 24 þúsund skipti alls, á 90 starfsstöðvum. Í fyrra voru starfsstöðvarnar 120.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í yfirliti yfir starfsemi Ísteka á blóðtökutímabilinu árið 2022. Samkvæmt yfirlitinu stóð blóðtakan yfir frá því um miðjan júlí og fram í október. Hjá „meðalgóðri“ hryssu var tekið blóð 5,8 sinnum en hjá 20 prósentum hryssna var blóð tekið átta sinnum og sjö sinnum hjá 31 prósent stóðsins. Samkvæmt yfirlitinu fer þeim hryssum fjölgandi sem „gefa“ blóð sjö eða átta sinnum en hlutfall þeirra var 51 prósent nú samanborið við 45,7 prósent að meðaltali árin 2017 til 2021. Er þetta sagt til marks um kynbótaframför í stóðum bænda hvað þennan eiginleika varðar. Magnið af blóði sem safnaðist var fjórðungi minna en árið 2021 vegna fækkunar í hópi blóðmerabænda. „Ástæðuna telur fyrirtækið að megi fyrst og fremst rekja til þeirra áhrifa sem óheiðarlega unnin og samsett myndbrot AWF, sem dreift var víða og m.a. sýnd í sjónvarpi, höfðu á bændur, ásamt því álagi sem fylgir því að upplifa sig jaðarsettan. Því miður tókst samtökunum það ætlunarverk sitt grátlega vel, að sannfæra margt fólk og samtök með rakalausum fullyrðingum sem þau heimfærðu á atvinnugreinina í heild. Þá er ástæða samdráttarins einnig rakin til erfiðrar mönnunar í hópi dýralækna en lipurð annarra dýralækna og ráðning erlendra dýralækna kom í veg fyrir að meira tjón raungerðist en leit út fyrir á tímabili,“ segir í yfirlitinu. Andvirði blóðs hjá „meðalgóðri framleiðsluhryssu“ hækkaði úr 70 þúsund krónum í 95 þúsund krónur. Heimildarmynd dýraverndunarsamtakanna TSB Tierschutzbund Zurich og AWF Animal Welfare Foundation um blóðmerahald á Íslandi vakti mikla athygli, enda náðu samtökin upptökum af harðræði bænda gegn hryssunum. Kvarta yfir ágengni AWF Samkvæmt yfirlitinu heimsótti eftirlitsdýralæknir Ísteka 90 prósent starfsstöðva auk þess sem eftirlitsaðilar á vegum erlendra kaupenda á lyfjaefni Ísteka heimsóttu meirihluta bænda. Þá segir að Ísteka hafi haft af því spurnir að MAST hafi heimsótt alla bændur á blótökutímabilinu. Í ár var í fyrsta sinn haldið skipulega utan um öll frávik, sem áttu sér stað í 391 tilviki. Flest tilvikanna voru vegna hryssna sem sýndu einkenni ótta eða streitu. Meirihluti þeirra er sagður hafa jafnað sig á meðan þær dvöldu í básnum. Endurtekin frávik voru skráð hjá 41 hryssu. Slys voru skráð hjá fimm hryssum og einu folaldi og afföll hryssna voru sjö, samkvæmt yfirlitinu. „Þá voru á tímabilinu skráð tilvik sem kallast „ofbeiting valds“ í skráningarforminu teljandi á fingrum annarar handar sem er samt of mikið. Að mati Ísteka er mjög nauðsynlegt að allir sem koma að vinnu við blóðtöku missi ekki sjónar á hlutverki sínu og leggi ávallt höfuðáherslu á velferð og nærgætni í umgengni sinni við hryssurnar. Þetta á að sjálfsögðu við í hvaða búfjárhaldi sem er,“ segir í yfirlitinu. Þar segir að tilmæli Ísteka um að hundar væru ekki á svæðinu þegar blóðtaka færi fram voru að mestu virt en staðfest að einn hundur hefði haft neikvæð áhrif á hryssur með hlaupum, gjammi og gelti. Ísteka segist framvegis munu gera þá kröfu að blóðtaka hefjist ekki ef hundar eru nærstaddir. Í yfirlitinu segir að fulltrúar samtakanna AWF hafi sést í nágrenni fimmtán bæja, ásamt upptökuteymi frá þýskum fjölmiðli. Forsvarsmenn Ísteka eru sagðir hafa hafnað þátttöku og fullyrt að hópurinn hafi orðið uppvís að dónaskap, ágengni og óskammfeilinni framkomu. „Ljóst er að framkoman AWF var það ógnandi að sumum bændum stóð ekki á sama. Markmiðið virðist beinlínis hafa verið að skapa þessar ógnandi aðstæður til að ná viðbrögðum bænda á filmu. Ísteka gerir ráð fyrir að efnið verði birt á næstu mánuðum í einhverju formi.“
Blóðmerahald Dýr Dýraheilbrigði Lyf Mest lesið Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ Innlent „Þetta var rétt ákvörðun“ Innlent Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Íslandi Innlent Dagný Ósk látin Innlent Um 30 manns innlyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Björn Leví telur einsýnt að Guðmundur Ingi hafi verið beittur ofbeldi Innlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Sautján voru handteknir í aðgerðum lögreglu Innlent Fleiri fréttir „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi „Þetta var rétt ákvörðun“ Orðin lýsi skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar Litlar breytingar þrátt fyrir lagabreytinguna Pawel leggur frumvarp Gríms um netsölu áfengis fram á ný Um 30 manns innlyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu Nafnið villandi og ekki lýsandi fyrir heilkennið Annað innbrotið á árinu: „Það var svo mikið blóð“ Sautján voru handteknir í aðgerðum lögreglu Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ Rokið, haustlitir og lauf út um allar trissur Fjöldi sjálfsvíga svipaður og fyrri ár Björn Leví telur einsýnt að Guðmundur Ingi hafi verið beittur ofbeldi Tilkynningar um heimilisofbeldi milli foreldra og barna tvöfaldast 350 milljóna tekjur Þingvalla í húfi vegna náttúrupassa Dapurlegt að móðir hafi barist í sjö ár fyrir sjálfsögðum rétti Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Bókun 35 og óveður setur strik í reikninginn Pallborðið í heild sinni: Klukkan tifar og staðan viðkvæm Rúta með skólabörn um borð fór út af veginum Þakplötur og trampólín á flugi Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Íslandi Borgarverk með lægsta boð í Þjórsárbrú og Búðafossveg Sjá meira