„Undarlegt að vilja ekki gefa upp opinberlega afstöðu sína en vera samt að hringja“ Snorri Másson skrifar 3. nóvember 2022 10:06 Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir Guðlaug Þór Þórðarson vel til þess fallinn að leiða Sjálfstæðisflokkinn inn í nýja tíma með nýjum aðferðum og nýjum leiðum. Hildur Sverrisdóttir þingmaður styður Bjarna í baráttu um formannssætið og telur ekki hægt að fullyrða að stjórnarsamstarfið yrði öruggt áfram án Bjarna.
Hildur og Ragnhildur Alda voru til viðtals í Íslandi í dag á miðvikudag og viðtalið við þær má sjá í spilaranum hér að ofan. Líkt og yfirskriftin ber með sér var farið um víðan völl í innslaginu, en viðtalið við Hildi og Öldu hefst á áttundu mínútu. Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, og Hildur Sverrisdóttir þingmaður flokksins styðja ólíka frambjóðendur í baráttu sem stendur yfir um formannssætið í flokknum. Viðtal við þær í Íslandi í dag má sjá hér að ofan.Vísir/Vilhelm Ellefu af fimmtán þingmönnum Sjálfstæðisflokks styðja Bjarna Hildur segir það hlutverk kjörinna fulltrúa að tjá afstöðu sína til formannsbaráttunnar. Aðrir þingmenn flokksins eru á öðru máli; Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður hnýtti til dæmis í samflokksmenn sína fyrir að tjá afstöðu sína opinberlega á dögunum. „Mér finnst það vera mitt hlutverk að vera kýrskýr gagnvart öllum sjálfstæðismönnum hvað mér finnst um þetta mikla hagsmunamál fyrir flokkinn. Ég verð að segja að mér finnst það kannski eilítið undarlegt að vilja ekki gefa upp opinberlega afstöðu sína en vera samt sem áður að hringja í stuðningsmenn og aðra. Ég sé engan eðlismun á því,“ segir Hildur. Alda María segir við því að búast að fólk tjái afstöðu sína en segir einnig að afstaða þingmanna ráði ekki öllu; sá mælikvarði hafi þannig verið Þorsteini Pálssyni í hag árið 1991 þegar Davíð Oddsson sigraði hann þó á landsfundi. Alda María lenti í öðru sæti á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjaík eftir baráttu um oddvitasæti við Hildi Björnsdóttur. Alda hefur starfað náið með Guðlaugi Þór.Vísir/Vilhelm Veltur ríkisstjórnin á Bjarna? Hildur segir Guðlaug og Bjarna báða stórskemmtilega og hörkuduglega menn og að munurinn á þeim í þessu tilliti sé ekki endilega skýr. Bjarni sé þó framúrskarandi stjórnmálamaður með skýra sýn sem sé nú í miðju vandmeðförnu stjórnarsamstarfi, þar sem persónur og leikendur skipti sannarlega máli. Ekki sé þó hægt að fullyrða að stjórnarsamstarfinu ljúki án Bjarna sem formanns. Alda segir muninn á Guðlaugi og Bjarna þann að Bjarni hafi málefnin og hugmyndafræðina að vopni en Guðlaugur segi að betur megi ef duga skuli og að ráðast þurfi í aðgerðir til að efla samtalið við grasrótina ef ætlunin er að breikka flokkinn. Alda segir að umræðan í tengslum við formannsbaráttuna sé á stundum óvarleg og þar vísar hún til kenninga um að án Bjarna lifi stjórnin ekki. „Ég held að ríkisstjórnin standi á miklu sterkari grunni en bara vináttu tveggja einstaklinga í stjórninni,“ segir Alda. Þessir flokkar geti unnið vel saman og hafi sýnt það. „Þær eru ekki í framboði“ Því hefur verið haldið fram, í greinum á borð við þessa, að með því að bjóða sig fram nú sé Guðlaugur Þór að hindra framgang Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur eða Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur í formannsstólinn á næsta landsfundi þegar líklegra er að Bjarni segi þetta gott. Hildur segist ekki geta sagt til um hvort þetta sé ástæðan fyrir tímasetningu framboðs Guðlaugs Þórs en að eðlilegt sé að fólk í flokknum velti þessu fyrir sér, þar sem tímapunkturinn sé viðkvæmur. Alda segir að svona vangaveltur hafi aftur á móti komið flatt upp á hana. „Bjarni hefur ekki sagt annað en að hann ætli að halda áfram út þetta kjörtímabil. Þannig að einhverjar pælingar um hvort þetta sé til að fara ekki til höfuðs Áslaugu og Þórdísi... þær eru ekki í framboði, sko. Ekki nema að það hafi staðið til að þær færu í framboð á móti Bjarna, þannig að ég held ekki. Ég segi að það er bara betra að byrja fyrr en seinna ef við ætlum að byggja upp flokkinn á þann hátt sem Gulli er búinn að boða.“
Sjálfstæðisflokkurinn Ísland í dag Formannsslagur Bjarna og Guðlaugs Þórs Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Sjá meira