Erlent

Aftur ráðherra sex dögum eftir afsögn fyrir siðabrot

Kjartan Kjartansson skrifar
Suella Braverman var innanríkisráðherra Liz Truss í sjö vikur, sagði af sér í sex daga og er nú aftur orðin ráðherra innanríkismála.
Suella Braverman var innanríkisráðherra Liz Truss í sjö vikur, sagði af sér í sex daga og er nú aftur orðin ráðherra innanríkismála. Vísir/EPA

Rishi Sunak, nýr forsætisráðherra Bretlands, skipaði Suellu Braverman innanríkisráðherra í ríkisstjórn sinni, aðeins sex dögum eftir að hún sagði af sér ráðherraembætti fyrir að brjóta siðareglur ráðherra. Jeremy Hunt heldur áfram sem fjármálaráðherra.

Braverman varð uppvís að því að senda gögn um innflytjendamál til samstarfsmanns síns í gegnum persónulegan tölvupóst sinn. Viðurkenndi hún að hafa gerst brotleg við siðareglur ráðherra og sagði af sér sem innanríkisráðherra á miðvikudag í síðustu viku. Ríkisstjórn Liz Truss sprakk tveimur dögum síðar.

„Sem innanríkisráðherra geri ég mestar kröfur til sjálfs míns og afsögn mín er hið rétta í stöðunni,“ sagði Braverman í bréfi þar sem hún tilkynnti um afsögn sína í síðustu viku.

Innan við vika var nóg fyrir Braverman til að axla ábyrgð á mistökum sínum að mati Sunak þar sem hann skipaði hana í sitt gamla embætti þegar hann tók við stjórnartaumunum í dag.

Af öðrum lykilembættum er það að frétta að Jeremy Hunt, sem Truss skipaði fjármálaráðherra eftir að hún rak Kwasi Kwarteng, heldur sínu striki og Dominic Raab verður aftur dómsmálaráðherra og varaforsætisráðherra. Hann gegndi embættunum í forsætisráðherratíð Boris Johnson þar til í sumar.

Penny Mordaunt, sem hugðist bjóða sig fram gegn Sunak í leiðtogakjöri en hætti við, verður áfram leiðtogi Íhaldsflokksins í neðri deild þingsins.


Tengdar fréttir

Sunak segist skipaður til að leiðrétta mistök

Liz Truss sem var óvinsælasti forsætisráðherra Bretlands frá því mælingar hófust hefur látið af völdum og Rishi Sunak er tekinn við. Hann segist hafa hlotið embættið leiðtoga og forsætisráðherra til að leiðrétta mistök en á grundvelli þess málaefnagrundvölls sem Boris Johnson fékk umboð til að koma í framkvæmd í síðustu kosningum.

Sunak segist skipaður til að leiðrétta mistök

Liz Truss sem var óvinsælasti forsætisráðherra Bretlands frá því mælingar hófust hefur látið af völdum og Rishi Sunak er tekinn við. Hann segist hafa hlotið embættið leiðtoga og forsætisráðherra til að leiðrétta mistök en á grundvelli þess málaefnagrundvölls sem Boris Johnson fékk umboð til að koma í framkvæmd í síðustu kosningum.

Sunak nýtt andlit á gömul gildi

Kjör Rishis Sunak sem leiðtoga breska Íhaldsflokksins markar tímamót á ýmsan hátt. Hann verður yngsti forsætisráðherrann í meira en tvær aldir og sá fyrsti sem er ekki hvítur. Inn við beinið er Sunak þó klassískur íhaldsmaður sem dáir Margaret Thatcher og aðhyllist lága skatta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×