Lífið

Jóhann Páll og Anna Bergljót eiga von á barni

Árni Sæberg skrifar
Jóhann Páll Jóhannsson alþingismaður á von á sínu fyrsta barni ásamt sambýliskonu sinni, Önnu Bergljótu Gunnarsdóttur.
Jóhann Páll Jóhannsson alþingismaður á von á sínu fyrsta barni ásamt sambýliskonu sinni, Önnu Bergljótu Gunnarsdóttur. vísir/vilhelm

Jóhann Páll Jóhannsson alþingismaður og Anna Bergljót Gunnarsdóttir, nýdoktor í efnafræði við Háskóla Íslands, greindu frá því fyrr í kvöld að þau ættu von á barni.

„Sitthvað að bakast og allt eins og það á að vera. Stúlkubarn væntanlegt um miðjan janúar,“ segir í færslu þeirra Jóhanns Páls og Önnu Bergljótar. Þar má sjá myndir af þeim auk girnilegrar nýbakaðrar pitsu.

Eðli málsins hefur hamingjuóskum rignt fyrir parið á samfélagsmiðlum enda eiga þau Jóhann Páll og Anna Bergljót von á sínu fyrsta barni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.