Lífið

Adam Levine og Behati Prinsloo eiga von á barni

Elísabet Hanna skrifar
Nú verða þau fimm manna fjölskylda.
Nú verða þau fimm manna fjölskylda. Getty/Manny Hernandez

Maroon 5 söngvarinn góðkunni Adam Levine og fyrirsætan Behati Prinsloo eiga von á sínu þriðja barni saman samkvæmt heimildum People. Parið gifti sig árið 2014 og rekur saman Calirosa vínframleiðsluna. 

Fyrir eiga þau dæturnar Gio Grace og Dusty Rose sem komu í heiminn árin 2016 og 2018. Behati hefur áður tjáð sig um að möguleikann á því að stækka fjölskylduna „aldrei segja aldrei,“ sagði hún þá. 

„Við vissum alltaf að við vildum annað. En á þessum tveimur árum sem ég var með tvö börn undir tveggja ára var ég bara: „Ekki einu sinni hugsa um það!“ Hún bætti því þó við að suma daga langaði hana í fimm börn.

Fyrir áhugasama er hægt að sjá innlit frá Architectural Digest á heimili þeirra hér að neðan:


Tengdar fréttir

Sagði frá trúlofuninni með sms-i

Söngvarinn Adam Levine trúlofaðist fyrirsætunni Behati Prinsloo fyrir stuttu. Hann var þá nýhættur með annarri fyrirsætu, Ninu Agdal, og sagði henni frá trúlofuninni í gegnum smáskilaboð.

Bregður á leik á nærbuxunum

Ofurfyrirsætan Behati Prinsloo birti ansi skemmtilega mynd af unnusta sínum, söngvaranum Adam Levine, á Instagram í vikunni.

600 fermetra ástarhreiður

Tónlistarmaðurinn Adam Levine hefur fest kaup á 600 fermetra glæsihýsi í Los Angeles. Húsið hefur verið nefnt Benedict-húsið og er afar glæsilegt í alla staði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.