Reynir hagnaðist um meira en tíu milljarða við söluna í Creditinfo
![Reynir seldi um 69 prósenta hlut sinn í Creditinfo fyrir um 13,5 milljarða króna. Hann endurfjárfesti hins vegar söluandvirðinu að hluta aftur í íslenska fyrirtækinu og er í dag næst stærsti hluthafi þess með vel yfir 30 prósenta hlut.](https://www.visir.is/i/D0304042831D59C25702D83E54CE2D87C4E2E717DAF4ABAAF15BC36CA99750F4_713x0.jpg)
Reynir Grétarsson, fjárfestir og stofnandi Creditinfo, hagnaðist um rúmlega 10,5 milljarða króna þegar hann seldi meirihluta sinn í íslenska upplýsingafyrirtækinu á liðnu ári til bandaríska framtakssjóðsins Levine Leichtman Capital. Allt hlutafé Creditinfo í viðskiptunum var metið á um 20 milljarða króna en endanlegt kaupverð, sem getur orðið hærra, veltur á tilteknum fjárhagslegum markmiðum.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/52E7987723D20365AAE0F5C119D76398E6DE8B682A7AEBE62CE833D38848D3E9_308x200.jpg)
Félag Reynis kaupir í Icelandair fyrir meira en hálfan milljarð
Fjárfestingafélag Reynis Grétarssonar, stofnanda Creditinfo, hefur eignast meira en eins prósenta hlut í Icelandair Group og er núna komið í hóp tuttugu stærstu hluthafa flugfélagsins.