Lífið

Ástrós og Adam eiga von á barni

Elísabet Hanna skrifar
Ástrós og Adam eru spennt að taka á móti barninu í byrjun næsta árs.
Ástrós og Adam eru spennt að taka á móti barninu í byrjun næsta árs. Skjáskot/Instagram

LXS raunveruleikastjarnan og dansarinn Ástrós Traustadóttir og frumkvöðullinn Adam Karl Helgason eiga von á barni í febrúar á næsta ári. Það er mikill spenningur hjá parinu fyrir erfingjanum en þetta er þeirra fyrsta barn saman.

„Ég er bara hress núna, fyrstu þrír mánuðirnir voru svona já, eins og þeir eru stundum og fylgir þessu,“ segir Ástrós og hlær í samtali við Vísi. Parið er komið í smá frí á Grikklandi þar eru þau að njóta þess að vera saman og slaka á og mætti jafnvel segja að um „babymoon“ ferð sé að ræða. 

Parið tilkynnti um komu barnsins á Instagram miðlum sínum með undirskriftinni „ Helmingurinn af mér, helmingurinn af þér.“ Adam á dóttur úr fyrra sambandi og eru þau spennt að stækka fjölskylduna enn frekar.


Tengdar fréttir

Ósk og Ingólfur eiga von á barni

Ósk Tryggvadóttir og Ingólfur Valur Þrastarson eiga von á barni. Þau hófu samband sitt eftir að hafa tekið upp myndbönd fyrir OnlyFans-síður þeirra saman.

Bubbi vissi fyrstur að von væri á barni

Leik- og söngkonan Rakel Björk Björnsdóttir og tónlistarmaðurinn Garðar Borgþórsson eru að bæta við sig nýju hlutverki sem foreldrar. Það var enginn annar en tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens sem vissi að barnið væri væntanlegt, jafnvel á undan foreldrunum sjálfum.

Edda Hermanns og Ríkharður Daða héldu draumabrúðkaup á Ítalíu

Edda Her­manns­dóttir, sam­skipta­stjóri Ís­lands­banka, og Rík­harður Daða­son, fjár­festir og fyrr­verandi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu héldu draumabrúðkaup á Ítalíu. Birgitta Haukdal, Ragnhildur Gísladóttir og Andri Guðmundsson sáu um að skemmta gestum í veislunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.