Lífið

Garðar Gunnlaugsson á skeljarnar í París

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Bónorðið var eins og úr rómantískri bíómynd við Eiffelturninn í París. 
Bónorðið var eins og úr rómantískri bíómynd við Eiffelturninn í París.  Instagram/Garðar Gunnlaugs

Fótboltamaðurinn Garðar Gunnlaugsson, leikmaður ÍA og fyrrverandi herra Ísland, bar upp stóru spurninguna í borg ástarinnar um helgina. 

15 ára aldursmunur

Garðar og Fanney Sandra Albertsdóttir eiga eitt barn saman og er fimmtán ára aldursmunur á parinu. Fanney starfar í dag sem flugfreyja, förðunarfræðingur og einkaþjálfari en hún vann einnig titilinn Miss Talent Iceland í Ungfrú Ísland-keppninni árið 2018. 

Bónorð fyrir framan Eiffel-turninn

Garðar virðist hafa verið búinn að undirbúa bónorðið vel en hann birti myndband af stóru stundinni á Instagram síðu sinni gær.

Bónorðið virtist vera vel skipulagt og hafa komið Fanneyju á óvart. Instagram/Garðar Gunnlaugs

Endaði með kossum

Parið var þá greinilega að gera sig líklegt til að njóta sín í veðurblíðunni í París og var búið að koma fyrir teppi og kampavíni í grasinu. Það var því sannkallaður romance -bíómyndabragur yfir bónorðinu sem virtist enda með já-i og kossum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.