Undraplantan kannabis Gunnar Dan Wiium skrifar 7. júní 2022 16:31 Í nokkur ár núna hef ég tekið inn svokallaða kannabínóða. Fyrir þau ykkar sem ekki vita hvað ég er að tala um þá ber að nefna kannabínóðana CBD og THC. Þessir tveir kannabínóðar eru þó bara 2 af þekktum 130 kannabínóðum sem finnast í undraplöntunni Cannabis sativa. Mig langar að skrifa hér nokkur orð um þetta ferli mitt og kannski útskýra aðeins hvað þessir kannabínóðar gera og afhverju þeir eru að virka svona vel við allskonar misalvarlegum kvillum. Svona til að byrja með langar mig að segja að í mörg ár misnotaði ég kannabínóðann THC. THC er eini kannabínóði plöntunar sem veldur hugarfarsbeytandi áhrifum eða vímu og þegar ég segi að ég hafi misnotað THC þá meina ég að ég hafi notað óþarflega mikið magn af þessum einstaka kannabínóða og í gegnum neyslu á lyfjahamp sem svo olli þeirra vímu sem ég sóttist í á þeim tíma og stað lífs míns. Lyfjahampurinn sem ég notaði var af Indica ættinni en kannabis skiptist í þrjá flokka: Kannabis Sativa (iðnaðarhampur) Kannabis Indica (lyfjahampur) og Kannabis rudialis. Kannabis Indica hefur það háa hlutfall THC sem ég sóttist eftir að nota. Maðurinn með aðferðum sem snúa að ræktun sækist eftir því að keyra magn THC upp og þá alltaf á kostnað kannabínóðans CBD svo einnhver sé nefndur. Þegar CBD er tekið úr jöfnunni á kostnað aukins magns THC eykst víman en heilunarmöguleikar plöntunar fara dvínandi því það sem CBD´ið gerir er að styðja við taugakerfið á einkar skilvirkan hátt. THC´ið gerir það líka nema hvað að í svo miklu ónáttúrulegu magni og breyttu hlutfalli við aðra kannabínóða hefur THC´ið þau áhrif á vitundina að hún dregst saman og í mínu tilfelli veldur ofsóknaræði, ranghugmyndum, þunglyndi, geðsveiflum og auknum líkum á mis alvarlegu geðrofi. Það eru nú all nokkur ár síðan ég svo stöðvaði þessa of einangruðu neyslu á kannabínóðanum THC og í dag nota í kannabínóða ekki í þeim tilgangi að komast í vímu sem ég trúi að skekkji vitund mína og skerði samkennd mína gagnvart öðru fólki og einangri mig. Lengi vel í bindindi mínu leit ég á plöntuna sem hættulega mér og öðrum. Ég leit á hana sem vímugjafa eina og sér og að hún væri mér og bindindi mínu stórhættuleg. Ég var í stríði við plöntuna á ómálefnanlegum forsendum og má segja að hugmyndir mínar um plöntuna hafi einkennst af fordómum og fáfræði þótt ég hafi reykt hana nánast daglega í nær tvo áratugi. Mig langar að útskýra fyrir ykkur kerfið sem kallast á ensku Endocannabinoid system, skammstafast sem ECS. Á íslensku myndi það þýðast sem Endokannabínóðakerfið og því skammstafast sem EKK. Kerfið sem um ræðir er flókið merkjakerfi frá frumunum sem samanstendur af endókannabínóðum, ensímum og kannabínóða-móttökum, sem hafa stjórn á ýmissi starfsemi í mannslíkamanum. Ber að nefna í þessu samhengi hjálp við svefn, lund, matarlyst og meltingu, minni, bólgumyndun, húðvandamál, endurheimt og frjósemi. Þessar flóknu tengingar finnast í heilanum, vefjum og kirtlum og í öllum aðal líffærum okkar. Kerfið var uppgötvað af tékkneskum vísindamanni árið 1992 í Ísrael og við þessa uppgötvun komust vísindamenn að því að líkaminn framleiðir sína eigin kannabínóða í margvíslegum tilgangi sem kerfið, ECS er hannað til að taka á móti. Síðustu hundrað ár eða svo hefur hampurinn, plantan verið svert og talin hættuleg og ólögleg. Þá er ég ekki aðeins að tala um Indica afbrigði plöntunar heldur líka ræktun og öll notkun á Iðnaðarhampi sem fyrir áróðursherferð há kapitalískra hagsmunaafla var gríðarlega útbreidd og áberandi sem hráefni í allskonar iðnaði. Má nefna í því samhengi í iðnaði sem snéri að allskonar textíl framleiðslu og pappír svo eitthvað sé nefnt. Þegar stórir hagsmunaaðilar innan pappírsiðnaðarins, stáliðnaðar, plast og pólyester komu saman í einskonar samkurli með íhaldsömu og valdamiklu samfélagi bindindishreyfinga í Bandaríkjunum upp úr 1900 fór af stað mikil viðhorfsbreyting í garð plöntunnar sem svo nú loksins virðist vera í sterkum og jákvæðum viðsnúning. Núna í ár eru um 2 ár síðan ræktun iðnaðarhamps varð lögleg aftur á Íslandi og síðan þá hefur orðið mikil vitundarvakning í garð hampsins sem og heilsufarslegum ávinning af notkun kannabínóða. Í ár er áætlað að ræktaðir verða um 150-200 hektarar af hamp, ræktendur eru misreynslumiklir og misskilvirkir hvað varðar notkun og vinnslu hampsins. Sumir eru komnir lengra en aðrir og með skýr markmið hvað varðar úrvinnslu og sölu afurða á meðan aðrir eru að fikra sig áfram með óljós markmið þrátt fyrir gríðarlegan áhuga á þeim möguleikum sem afurðin bíður upp á. Sama hve skilvirk úrvinnslan er að hverju sinni þá situr alltaf umhverfisþátturinn eftir því í raun má segja að hampurinn sé að binda um 20 sinnum meira kolefnum en hefðbundin skógrækt og að ca 1 hektari í ræktun sem tekur um 3-4 mánuði sé nóg til að kolefnisjafna einn íslending miðað hvað við losum í dag. Svona í lokin langar mig að setja fram smá upptalningu á þeim þáttum sem bein notkun á kannabínóðum í formi fæðubótar hefur haft áhrif á. Ég vill byrja á að þeim áhrifum sem langtíma notkun á kannabínóðum hefur haft á lund mína og geð. Ég finn sterkt fyrir léttari lund þar sem ég oft á tíðum hneigðist til þunglyndis og geðsveiflna sem keyrð voru áfram af ótta, langvarandi kvíða og gremju. Þeir þættir sem snúa að lund gera það að verkum að ég er betri í stakk búin að sinna hlutverkum mínum sem faðir, eiginmaður, samstarfsfélagi og almennur samfélagsþegn. Hvað varðar minni, athyglisgáfu og innsæi líður mér eins og ég sé í toppformi þrátt fyrri að umhverfi mitt sé fullt og ríkt af oft á tíðum mjög krefjandi verkefnum. Ég finn sterkt fyrir bólguminnkun í líkamanum sem í raun þýðir að langvarandi stoðkerfisverkir í baki svo eitthvað sé nefnt eru algjörlega horfnir. Ástand húðar, hárs og nagla eru eins best er á kosið auk þess að ég finn fyrir betri og skilvirkari meltingu. Á sama tíma og ég sjálfur finn fyrir þessum breytum í lífi mínu þökk sé kannabínóðum heyri ég sögur daglega nánast af fólki sem leitar til mín eftir ráðum hvað varðar notkun og val á hinum og þessum olíum sem eru í boði. Þessir einstaklingar eru að losa sig við verkjalyf eftir langvarandi neyslu þeirra sem og notkun hina ýmsu lyfja tengt bólgusjúkdómum, greindu þunglyndi, athyglisbrest, kvíða, svefntruflunum o.s.f.r. Ég hef horft upp á mann standa upp úr gríðarlega alvarlegum og sársaukafullum einkennum Parkison með notkun CBD olía sem fást hér útí búð. Ég hef talað við konur sem sögðu að kannabínóðar í raun komu þeim í gegn um breytingaskeið og svo síðast en ekki síst hef ég talað við fólk sem ber það góðar sögur af kannabínóðum í tengslum við krabbamein svo að þeim megi nánast líkja við kraftaverk. Olían, CBD olían sem allir eru að tala um fæst í dag út í búð ólíkt því hvernig aðgengið var fyrir aðeins 3-4 árum síðan. Nú getur þú nálgast olíuna í Hagkaup og apótekum ásamt búðum og vefverslunum sem sérhæfa sig í þessari fæðubót sem kannabínóðarnir eru. Ég hef rekst á talsvert magn af svokölluðum “WhiteLable” vörum þarna úti. Þá meint að olían er seld sem íslensk framleiðsla en í raun er aðeins um íslenskt samsetta vöru um að ræða. Kannabínóðarnir eru fluttir inn einangraðir í dufti, blandaðir í nauðsynlega burðarolíu og svo pakkað í fallegar umbúðir. Lítið er um afurð sem flokkast mætti sem heildræn framleiðsla og rík af öllum kannabínóðum plöntunar ásamt öllum þeim sýrum og terpunum sem plantan inniheldur. Með öðrum orðum veljum gott og vandað CBD því í dag erum við í aðstæðu til þess ólíkt því hvernig ástandið var fyrir aðeins nokkrum árum síðan. Þeir sem vilja kynna sér málefni hampsins á Íslandi frekar er bent á Hampfélagið, þar sem hægt er að skrá sig í félagið og fylgjast með þróun hampsins á Íslandi. Höfundur er smíðakennari og þáttarstjórnandi hlaðvarpsins Þvottahúsið. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kannabis Gunnar Dan Wiium Mest lesið Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun 25,2% árangur Gísli Garðarsson Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Innsæi og góð dómgreind á tímum óvissu Hrund Gunnsteinsdóttir Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Hvönnin í bjarginu Jón Steindór Valdimarsson Skoðun Skoðun Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson skrifar Skoðun Innsæi og góð dómgreind á tímum óvissu Hrund Gunnsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir skrifar Skoðun Hvönnin í bjarginu Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun 25,2% árangur Gísli Garðarsson skrifar Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum með blaðamönnum Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar Skoðun Þess vegna segjum við NEI þann 29. ágúst Þorvaldur Þorvaldsson skrifar Skoðun Ég kýs JÁ ! - Hvers vegna? skrifar Skoðun Kveðja til hleðslukvíðans Úlfar Linnet skrifar Skoðun Samkeppnishæfni Íslands Ingvar Þóroddsson skrifar Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Traust er ekki sjálfgefið Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Sjá meira
Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar
Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar
Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir Skoðun