Ítalskir áhrifavaldar kolféllu fyrir Íslandi í ferð með Scarpa Fjallakofinn 23. maí 2022 15:14 Ítalska leikkonan Matilde Lojacono Gioli var stödd hér á landi á vegum FJallakofans og Scarpa. Ítalskir áhrifavaldar féllu kylliflatir fyrir Íslandi er þeir heimsóttu landið á vegum Fjallakofans og Scarpa á dögunum.
Fyrirsætan Fiametta Cicogna birti skemmtilegar myndir á Instagramsíðu sinni frá ferðinni og leikkonan Matilde Lojacono Gioli einnig. Með í för voru fjallagarpurinn Hervé Barmasse, eigendur Skóframleiðandans SCARPA og blaðamenn en tilefni ferðarinnar var 40 ára afmæli SCARPA á Íslandi. Halldór Hreinsson, eigandi Fjallakofans skipulagði ferðina með sínu fólki og ferðaðist með hópinn um Suðurlandið. Fiammetta var hæst ánægð með Halldór og ferðina. „Við vorum svo heppin að veðurguðirnir sneru algjörlega við allri rigningarspá og skörtuðu sínu fegursta allan tímann, sól og heiðríkja, nema smá súld og þoka á Mýrdalsjökli en það jók bara hughrifin enn meira,“ segir Halldór en hópurinn heimsótti meðal annars Gullfoss og Geysi, Seljalandsfoss og Skógarfoss, Vík í Mýrdal og Reynisfjöru, skoðaði íshella og gekk á fjallaskíðum á Mýrdalsjökli. Smá súld jók bara á töfra Mýrdalsjökuls „Það gekk allt upp. Í Reynisfjöru fengum við óvænta lundaflugsýningu um kvöld. Við vorum hluti hópsins ein í fjörunni en það hafði verð skyndiákvörðun að skjótast þangað,“ segir Halldór. Hópurinn hafi verið yfir sig ánægður með ferðina og ekki síst fararstjórnina. „Fiammetta sagði við mig aftur og aftur, „Halldór - they don´t make men like you anymore!“ Það má segja að það hafi verið hápunktur ferðarinnar,“ fyrir mig segir hann sposkur. Klippa: Íslandsferð með Fjallakofanum SCARPA er ítalskt fjölskyldufyrirtæki sem stofnað var 1938 í Asolo við rætur Dolomita fjallanna. Scarpa framleiðir hágæða gönguskó, klifur-, hlaupa-, fjallaskíða- og götuskó sem njóta mikilla vinsælda. FJALLAKOFINN er með sérstaka SCARPA daga í gangi og allir Scarpa skór eru á sérstökum afslætti í Fjallakofanum fram yfir uppstigningardaginn nk. Hér fyrir neðan má sjá fleiri myndir úr ferðinni og myndband:
Fjallamennska Ferðalög Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Viðskipti innlent Auglýstu tilboð of títt og fá milljón í sekt Neytendur Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Viðskipti innlent Sá elsti í heiðurshópnum níutíu ára Atvinnulíf Spá aukinni verðbólgu um jólin Viðskipti innlent Brú Talent kaupir Geko Consulting Viðskipti innlent Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Viðskipti innlent Ætlar að endurreisa Niceair Viðskipti innlent Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu Viðskipti innlent Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Gatnamótin opin á ný við Fjarðarkaup Yfir milljón dagskrárliðir sóttir vikulega Greiðsluáskorun Jólagjöf ársins 2025 veltir sigurvegara síðustu tveggja ára úr sessi Ertu þremur mínútum frá draumastarfinu? Kerfi sem virka eins og lungu landeldisstöðva Sjá meira