Giroud tryggði AC Milan fyrsta Ítalíumeistaratitilinn í ellefu ár Arnar Geir Halldórsson skrifar 22. maí 2022 18:00 Nítjándi titillinn í höfn. vísir/Getty AC Milan er Ítalíumeistari í fótbolta í nítjánda sinn eftir öruggan sigur á Sassuolo í lokaumferð ítölsku úrvalsdeildarinnar. AC Milan nægði jafntefli til að tryggja titilinn en á sama tíma voru erkifjendur þeirra í Inter að etja kappi við Sampdoria og munaði þremur stigum á liðunum fyrir lokaumferðina. Það var þó aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi lenda í dag því Olivier Giroud kom Milan í tveggja marka forystu á fyrsta hálftíma leiksins. Franck Kessie jók við forystuna á 36. mínútu og úrslitin nánast ráðin. Fór að lokum svo að AC Milan vann 0-3 sigur og breytti því engu um stöðuna á toppnum að Inter vann á sama tíma 3-0 sigur á Sampdoria. Ítalski boltinn Ítalía
Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti
Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 107-110 | Stjarnan í úrslit eftir háspennu í framlengdum leik Körfubolti
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti
Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 107-110 | Stjarnan í úrslit eftir háspennu í framlengdum leik Körfubolti