Ein undir pari: Heldur fyrsta golfmót einhleypra Ása Ninna Pétursdóttir skrifar 11. maí 2022 11:31 Hrafnhildur Arnardóttir stendur fyrir Golfmóti einhleypra þann 28. maí á Kiðjabergi. Silla Páls/Getty „Það er bara oft þannig að pör gleyma að hugsa um þá sem eru einhleypir og bjóða frekar öðrum pörum með sér í svona hobbí,“ segir Hrafnhildur Arnardóttir í samtali við Vísi.
Segir einhleypa vini oft gleymast Hugmyndina að koma af stað sér golfmóti bara fyrir einhleypa segir Hrafnhildur hafa kviknað nýlega út frá eigin reynslu en sjálf hefur hún verið einhleyp í rúm fimm ár. „Mér hefur fundist vanta vettvang fyrir einhleypt fólk að hittast, sérstaklega þegar kemur að áhugamálunum.“ Hún segir það ákveðna lensku að pör sæki meira í önnur pör þegar kemur að félagsskap og viðburðum og því verði þeir einhleypu oft á tíðum útundan. Ég veit að þetta er ekki illa meint hjá fólki sem er í sambandi, en þetta þróast oft á tíðum svona að einhleypum vinum er kannski síður boðið með. Ástin gæti poppað upp á holu í höggi Hrafnhildur hefur sjálf stundað golf í um fjögur ár og segist hafa mikla trú á því að sér golfmót fyrir einhleypa sé eitthvað sem mörgum finnist vanta. „Það eru til sérstök paramót svo afhverju ekki að bjóða upp á golfmót bara fyrir einhleypa?“ segir Hrafnhildur og bætir því við að hún hafa strax fundið fyrir miklum áhuga á mótinu. Mótið verður haldið þann 28. maí á golfvellinum Kiðbjabergi og eru pláss fyrir 72 einstaklinga og er aldurstakmarkið 25 ár. „Það verða mjög veglegir vinningar í boði og svo er súpa og brauð innifalið í mótsgjaldinu sem er 9000 krónur,“ segir Hrafnhildur sem hvetur einhleypa einstaklinga sem hafa áhuga á golfi að slá til. Þeir sem hafa áhuga geta skráð sig til í gegnum netfangið: golfmoteinhleypra@gmail.com og freistað þessa að taka þátt og er aldrei að vita nema að ástin poppi upp á holu í höggi.
Golf Ástin og lífið Mest lesið „Hann var ekkert eðlilega góður í sleik“ Makamál Kristrún spyr af hverju píkunni hennar sé gefið svo mikið gildi Makamál Stóð í skilnaði í miðjum heimsfaraldri en lítur björtum augum á framtíðina Makamál Einhleypan: Kaffisötrandi súludansari sem elskar skó Makamál Einhleypan: Guinnes heimsmethafi og ævintýrakona sem þolir ekki fullorðishluti Makamál Einhleypa mánaðarins: „Fullkomin, fullkomin, fullkomin“ Makamál Föðurland: „Fáránlegt að snuða unga foreldra um fæðingarorlof, feður ættu að fá lengri tíma“ Makamál „Fundum fyrir miklum skorti á efni sem endurspeglaði okkar fjölskylduform“ Makamál Aðeins 26 prósent karla velja sér eldri maka Makamál Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert á ævinni Makamál Fleiri fréttir „Hann var ekkert eðlilega góður í sleik“ Einhleypan: Tískuelskandi lögfræðingur með sterka réttlætiskennd Einhleypan: Tískuelskandi lögfræðingur með sterka réttlætiskennd Sjá meira